samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Mér leikur hugur á að vita af hverju forseti kýs að hafna fyrirspurn Tryggva Mássonar varaþingmanns um þjónustugjöld, með vísan í 1. mgr. 57. gr. þingskapalaga. Mig langar til að lesa þessa fyrirspurn:
„Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta? Hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun af þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.“
Frú forseti. Ef maður les 1. mgr. 57. gr. kemur þar fram að fyrirspurn skal vera skýr og skal vera um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli.
Frú forseti. Hvað er það nákvæmlega sem forseti er óánægður með í þeirri fyrirspurn sem ég var rétt í þessu að lesa og kýs því að hafna fyrirspurninni?