samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Þó að þessi fyrirspurn ætti við um hvert einasta ráðuneyti þá ætla ég að leyfa mér að halda því fram að hér hafi komið fram á síðasta áratug miklu flóknari og opnari fyrirspurnir heldur en þessi hér. Því verð ég að segja, frú forseti, að það eru mér ákveðin vonbrigði að fyrirspurninni skuli hafnað því það er auðvitað algerlega augljóst að allt sem kemur fram í þessari fyrirspurn eru sannarlega réttindi þingmanna að nálgast hvað varðar upplýsingar og ráðuneytum skylt að veita. Og þó að hér sé ekki þingmaður sem ég fylgdist ágætlega með á síðustu þingum, sem heitir Björn Leví Gunnarsson, þá veit ég það t.d. að þær fyrirspurnir sem komu fram hjá þeim hv. fyrrverandi þingmanni voru mjög ítarlegar og gjarnan beint til allra ráðuneyta, allra stofnana og jafnvel með enn frekari skírskotun en það. Þannig að ég ítreka að það eru vonbrigði, frú forseti, að þessu sé hafnað og ég held að forseti ætti að endurskoða ákvörðun sína í því máli.