157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:46]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína og kynningu á málefninu á fundi velferðarnefndar í síðustu viku. Hér er um gott mál að ræða sem ég styð heils hugar. Ég staldra hins vegar við orð ráðherrans um að í frumvarpinu felist engin ný réttindi fyrir fatlað fólk. Ég hef sem lögmaður flutt þó nokkuð af þeim dómsmálum sem er fjallað um í greinargerðinni og hafa m.a. fallið á því að samningurinn sem hér um ræðir var ekki lögfestur. Lögfestingin sem slík felur það í sér að borgarar landsins geta í samskiptum sínum við stjórnvöld byggt efnisrétt á ákvæðunum og krafist þar með endurskoðunar á rétti sínum fyrir dómstólum. Ég óska því eftir því að ráðherrann skýri þessi orð sín betur.