samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svarið. Ég legg hins vegar á það áherslu að hér er um alvörumál að ræða sem á að hafa raunveruleg áhrif á aðstæður fatlaðs fólks og því vil ég brýna ráðherrann til að huga vel að þessu. Mér líst ekkert á það plan að bíða eftir því og sjá hvað dómstólunum finnst felast í samningnum heldur miklum mun frekar að virða bara efni samningsins sem við höfum nú þegar fullgilt og stendur til að lögfesta. Í samningnum er m.a. kveðið á um þá skyldu að aðildarríkin skuli samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með þessum samningi. Því óska ég eftir því að ráðherrann veiti okkur upplýsingar um hvað það er í íslenskri löggjöf sem hann telur að þurfi að breyta í kjölfar lögfestingar samningsins.