samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Jú, hvað hefur breyst? Sem dæmi má nefna breytinguna sem gerð var með lögum nr. 38/2018. Nú bind ég hjartans vonir til þess að þegar við setjum lög á Alþingi Íslendinga séu þau í raun skýr skilaboð um að ætlast sé til að farið sé eftir þeim. Ég vonast til þess að það verði sjaldnar en ekki sem við þurfum að láta dómstóla kveða á um nokkuð.
Ég veit að hv. þingmaður þekkir ágætlega bréfaskriftirnar sem urðu á milli fyrrverandi forsætisráðherra og Hæstaréttar á sínum tíma þegar öryrkjadómurinn 2000, hinn svokallaði öryrkjadómur fyrri, féll á sínum tíma og allir þekkja sem einhvern tíma hafa lesið lögin. Ég vona að ég lendi ekki í þeirri stöðu að fara að skrifast á við Hæstarétt eða neitt slíkt þannig að við skulum bara sjá til. Ég bind vonir við að þetta leysist farsællega hjá okkur öllum og að allir verði tilbúnir, sveitarfélög jafnt sem ríkisvald, að fara að fullu eftir löggjöfinni þegar hún hefur tekið gildi.