157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:51]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð málsins. Mig langar að vera á svipuðum nótum og aðrir sem hafa komið upp í þessu máli. Ég vil byrja á því að fagna þessu frumvarpi sem slíku en lögfesting sáttmálans er talin gríðarlega mikilvæg því hún muni breyta svo miklu. Á sama tíma er sagt að áhrifin á sveitarfélögin verði engin. Nú hafa komið, eins og á síðasta þingi, umsagnir frá Samtökum sveitarfélaga þar sem lýst er verulegum áhyggjum af þessum kostnaði og hann geti numið um 14–19 milljörðum á ári hverju. Reykjavíkurborg, höfuðborgin okkar, er líka mjög harðorð í garð þess að ekki hafi verið gert kostnaðarmat. Mig langar til að spyrja og fá ítarlegar fram frá ráðherranum af hverju var ekki reynt að gera eitthvert kostnaðarmat á þessum áhrifum? Því það stemmir ekki alveg sem kemur fram í greinargerðinni. Þetta á að hafa gríðarleg áhrif en samt engan aukakostnað.