157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:52]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, sem ég reyndar var búin að gera ráð fyrir, og ætla að ítreka það sem ég setti hér fram þegar ég var að flytja frumvarpið. Þar segir að HLH Ráðgjöf hafi unnið mat á áhrifum lögfestingarinnar á fjárhag sveitarfélaga fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem í rauninni hefur orðið gríðarlega mikil viðhorfsbreyting á þessum tíma og miklu meiri vilji og bjartsýni sveitarfélaganna almennt um lögfestinguna. Þær forsendur sem notaðar eru til grundvallar því mati virðast að miklu leyti vera þær sömu og í skýrslu starfshóps um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu fatlaðra. Í niðurstöðu HLH Ráðgjafar á mati á áhrifum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk fólks vegur þyngst núverandi biðlisti eftir sértækum búsetuúrræðum á grundvelli laga nr. 38/2018. Sá kostnaður sem er sagður leggjast á sveitarfélögin vegna lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna er sem sagt áætlaður kostnaður vegna atriða sem þegar hafa verið lögfest í lögum nr. 38/2018.

Ég segi bara: Í gangi er þetta samtal (Forseti hringir.) Jónsmessunefndar til að tryggja fjármögnun þessara úrræða, svo sem búsetuúrræða, með sanngjörnum hætti. Ég bind vonir við að sátt náist þar um milli ríkis og sveitarfélaga, þannig að við erum bara bjartsýn og brosandi.