157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:54]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Mig langar til að fá aðeins fram frá ráðherranum — ég heyri og hef heyrt áður að það eru engar áhyggjur af því að þessi lögfesting muni leiða til aukins kostnaðar og ég tek það fram að það er dapurt að við séum að tala um kostnað í þessum málaflokki. En það er bara raunveruleikinn. Það er ábyrgðin sem okkur er falin hérna, að sjá fyrir endann á hlutunum. Mig langar til að spyrja ráðherrann að því hvort hún viti af hverju samningurinn hefur ekki verið lögfestur á öðrum Norðurlöndum, eins og kemur fram í greinargerðinni að hafi ekki átt sér stað, og líka hvort ráðherrann sé sammála því, svo að við séum ekki að kýta, sveitarfélög við ríkið. Þetta eru allt sömu fjármunirnir. Þetta eru skattpeningarnir okkar, sama hvort þeir renna til ríkis eða sveitarfélaga. Getur ráðherra tekið undir að það gæti verið góð leið að ríkið taki við málaflokknum aftur, þ.e. fjárhagslegri ábyrgð á málaflokknum, og gerði samninga (Forseti hringir.) við sveitarfélögin um útfærslu þjónustu en tæki alfarið ábyrgð á fjárhagslegum þáttum málaflokksins?