samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það sem við höfum verið að gera í þessari ríkisstjórn til að létta undir með sveitarfélögunum er að taka til okkar ýmsa þjónustu eins og t.d. að tryggja NPA-þjónustu. Þar er ekki einn einasti samningur á bið lengur en í einn dag, a.m.k. hvað lýtur að skuldbindingu ríkisins þar sem við greiðum 25%. Við höfum tekið til okkar þriðja stigs þjónustu sem varðar börn með fjölþættan vanda. Við höfum líka tekið til okkar og erum núna að byggja upp öryggisvistunarúrræði sem hefur verið hálf hornreka í samfélaginu um árabil og helst enginn viljað snerta á. En að við höfum verið að hlutast til um eitthvað í sambandi við búsetukjarna og hvernig sveitarfélögin hafa ákveðið að byggja húsnæði fyrir sína íbúa, það höfum við ekki gert að mér vitandi. Þannig að nei, ekki svo ég viti.