samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Mig langar bara að hvetja hv. ráðherra til að skoða þetta mál. Ég vísa hér í þskj. 2267 þar sem ég lagði fram fyrirspurn til fyrrverandi hæstv. félagsmálaráðherra um þessa reglugerð sérstaklega. Bara svo ég útskýri hvað hér er átt við: Jú, þetta eru sveitarfélögin sem byggja þetta húsnæði en þeim er sniðinn mjög þröngur stakkur vegna þessarar reglugerðar. Þetta snýst um það þegar við förum að fara úr herbergjasambýlum í sjálfstæða búsetu. Og guð minn góður, virðulegur forseti, hvað ég er hlynnt því. Það er þó allur gangur á hvernig hægt er að byggja upp þjónustu fyrir fatlað fólk og fatlað fólk er auðvitað eins og við hin með mjög ólíkar þarfir innbyrðis. Ábending mín hér er sú að ég held að við höfum verið að steypa alla svolítið í sama mótið og ég held að þessi reglugerð sé óþarflega íþyngjandi og valdi auknum kostnaði í uppbyggingu á mikilvægu húsnæði fyrir fatlaða einstaklinga. Ég ætla bara að nota tækifærið hér og hvetja hæstv. ráðherra til að skoða þetta og kannski legg ég fram fyrirspurnina að nýju og fæ svar frá nýjum hæstv. ráðherra við þessari fyrirspurn minni.