samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Mér þykir hæstv. félagsmálaráðherra stundum slá í og úr þegar kemur að umræðu um þessi mál og þennan samning, sérstaklega um þetta frumvarp sem hér liggur fyrir okkur. Annars vegar hefur hæstv. félagsmálaráðherra lagt mikla áherslu á að þetta mál nái fram að ganga og þetta sé mikil réttarbót og það sem fatlað fólk hafi verið að bíða eftir og að í dag sé ekki degi of snemmt að samþykkja þetta. Hins vegar hefur hún svarað því hér að í rauninni felist ekki í þessu neinn kostnaður og engar breytingar í sjálfu sér, enda kemur það líka fram í frumvarpinu sjálfu, í kaflanum um mat á áhrifum, að ekki sé gert ráð fyrir því að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs, hvorki ríkistekjur eða útgjöld og ekki einu sinni á sveitarfélögin heldur; lögfestingin sem slík kalli ekki á auknar aðgerðir, svo sem þróun þjónustuúrræða eða aukna fræðslu.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því aftur, þar sem annar hv. þingmaður hefur líka varpað þessu fram hér í andsvari: Hver er afstaða hæstv. ráðherra til réttaráhrifa af lögfestingu þessa samnings?