samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í ræðum mínum á síðasta þingi þegar um þetta mál var fjallað er mér umhugað um að væntingum fólks sé stillt í hóf, a.m.k. til samræmis við raunveruleikann. Ég hlýt að spyrja hæstv. ráðherra aftur að því hvað felist í orðum hennar. Hvað felur það í sér að segja að lögfesting þessa samnings tryggi réttarbót? Hvað tryggir þessi samningur? Við skulum taka eitt dæmi bara sem hefur staðið út af lengi varðandi fatlað fólk. Ungt fólk eða fólk sem verður 18 ára, jafnvel 16 ára, er í rauninni stafrænt útilokað frá ýmissi þjónustu eða samskiptum við opinbera aðila og einkaaðila með því að fá ekki útgefin rafræn skilríki. Þetta hefur verið vandamál og hefur verið til umfjöllunar í mörg ár en einhvern veginn hefur ekki tekist að leysa þetta mál. Þetta er bara lítið praktískt atriði sem þarf að leysa. Halda menn að lögfesting á þessum samningi leysi þetta brýna aðkallandi mál fyrir ungt fólk með þessa fötlun, að það getur ekki nýtt sér rafræn auðkenni? (Forseti hringir.)
Ég spyr hæstv. ráðherra aftur: Hvaða réttindi nákvæmlega felur lögfestingin í sér sem fullgildingin hefur ekki fært eða er ekki fær um að færa fötluðu fólki? Með fullgildingunni hafa menn einmitt farið og hrundið í framkvæmd (Forseti hringir.) mjög miklum og mikilvægum lagabreytingum og úrbótum í þágu fatlaðra.