samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég vil í upphafi ræðu minnar ítreka þakkir mínar fyrir framsögu ráðherrans og kynningu á fundi velferðarnefndar sem og þátttöku í þessum umræðum sem hafa verið hér í þingsal sem ég tel að séu gagnlegar og upplýsandi. Það kom fram í máli mínu að ég þekki þennan málaflokk í tengslum við lögmannsstörf mín, hef raunar flutt töluvert af dómsmálum er varða málaflokkinn og þau réttindi sem hér eru til umræðu fyrir æðsta dómstól landsins með misjöfnum árangri. Sum þeirra féllu einmitt akkúrat á því að samningurinn hefði ekki verið lögfestur, svo sem eins og er rakið í greinargerð með frumvarpinu, þannig að ég er stuðningsmaður þessa máls og ég er stuðningsmaður þess að við leiðum í lög samninginn.
Þetta er jafnréttissamningur sem er ætlað að tryggja að fatlað fólk fái notið sömu mannréttinda og ófatlað fólk. Þetta er alvörumál. Þess vegna, sem áhugamaður um málefnið, staldra ég auðvitað við þetta upplegg ráðherrans eða eftir atvikum ráðuneytisins. Ég óska þess að menn taki þetta alvarlega og ætli því strax í upphafi að lögfestingin hafi raunveruleg áhrif; ekki einhver falleg stefnu- eða viljayfirlýsing stjórnvalda heldur raunveruleg áhrif á réttindi borgaranna, fatlaðs fólks, þegar kemur að samskiptum við stjórnvöld og að það geti notið þessara réttinda og byggt á þeim fyrir dómstólum ef þarf.
Þess vegna spurði ég ráðherra í ræðu minni hvort lögfestingin sem slík kalli á breytingu á öðrum lögum. Ég vísa í því sambandi til 1. mgr. 4. gr. samningsins. Það er ein af skyldunum sem við undirgengumst með fullgildingu samningsins að búa svo um hnútana að íslensk löggjöf sé í samræmi við efni samningsins. Það dylst engum, hvorki í ráðuneytinu né öðrum sem unnið hafa að þessum málaflokki, að þar þurfum við enn að bæta okkur, kom fram í máli hv. þm. Sigríðar Á. Andersen varðandi 12. gr. samningsins, nýtingu löghæfis og gerhæfis. Það dylst engum sem komið hefur að þessum málum að þar þarf augljóslega að breyta lögræðislögum.
En það sem ég tel vanta hér, sem er auðvitað óheppilegt, er að það liggur ekki fyrir einhvers konar kortlagning á því sem breyta þurfi. Það er óheppilegt af svo mörgum ástæðum, bæði stendur það upplýstri umræðu fyrir þrifum — ef ætlan löggjafans er sú raunverulega að festa í sessi ákvæði samningsins og réttindi borgaranna þá væri rétt að huga að því strax í upphafi með akkúrat kortlagningu á hverju þurfi að breyta í íslenskum rétti.
Kannski er rétt að geta þess bara strax í upphafi því það kann að týnast að einhverju leyti í umræðunni að eitt eru mannréttindasamningar, alþjóðlegir samningar sem íslenska ríkið undirgengst, undirritar og fullgildir og kveður það á um skyldur íslenska ríkisins gagnvart öðrum aðilum þeirra samninga en við borgararnir getum hins vegar ekki byggt á þeim rétti. Það er hins vegar við innleiðingu slíkra samninga, hvort heldur er með lögfestingu í heild sinni eins og hér um ræðir eða þá með innleiðingu einstakra ákvæða, sem borgurunum gefst fyrst tækifæri til þess að byggja á þeim rétti. Þar með eru skyldurnar settar á stjórnvöld, sveitarfélögin í landinu sem fara með þennan málaflokk.
Ég ítreka að þetta er ekki ég einhvern veginn að tala um einhver nýmæli eða eitt né neitt slíkt. Svona er þetta almennt unnið þegar ríki sem við viljum bera okkur saman við eru að huga að svo mikilvægu máli sem lögfesting þessa samnings er. Í því sambandi vek ég athygli þingheims á því hvernig Noregur vann að þessu máli. Þar var kölluð til nefnd sérfræðinga sem fór yfir norska löggjöf, ég held að þetta hafi verið árið 2022, skilaði um það 500 bls. skýrslu, færði rök fyrir því hverju þyrfti að breyta, af hverju o.s.frv. Það væri betra, svo ég ítreki það enn og aftur, að einhver slík greining lægi fyrir þegar við tökum þetta mál til afgreiðslu.
Það er líka auðvitað óheppilegt að það sé rekistefna um ætlaðan kostnað af lögfestingunni sjálfri. Það er óhjákvæmilegt að hann verði einhver, hugsanlega umtalsverður. Án þess að hafa mótað mér einhverja sérstaka skoðun á því þá fannst mér athyglisvert sem kom fram í máli hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur um aðkomu ríkisins að því. Ég vann að þessum málum sem lögmaður á þeim tíma líka þegar málaflokkurinn var hjá ríkinu og hann var svo fluttur til sveitarfélaganna. Eflaust á einhverjum tímapunkti væri skynsamlegt að athuga hvort rétt væri að líta á árangur flutningsins og þá eftir atvikum hvort og hvernig væri hægt að mæta þá — þetta getur auðvitað haft mismikil áhrif á sveitarfélögin, þau eru misstór o.s.frv.
Þetta er það sem ég vildi helst segja um málið á þessum tímapunkti. Mér líst vel á þetta mál en uppleggið við mat á áhrifum þess og umfangi er að mínu viti rangt. Ég hlakka hins vegar til umræðunnar í hv. velferðarnefnd og til að ræða málið enn frekar við ráðherra og sérfræðingana í ráðuneytinu og læt þessu lokið í bili.