157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:16]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann sem einmitt nefndi það í ræðu sinni að hann hafi reynslu af málarekstri í þessum málum öllum saman og í ljósi þess að hann vísar til greinargerðar í frumvarpinu þar sem látið er að því liggja að dómaframkvæmd — eða það er svo sem sagt að það megi finna vísbendingar um að það myndi styrkja stöðu samningsins að lögfesta hann. Það er auðvitað ekki verið að fullyrða að dómstólar hefðu dæmt einhver réttindi með tilteknum hætti. Hins vegar er á það bent að í dómsmáli, ef einhver bæri fyrir sig samninginn sem ákveðna réttarheimild þá geti dómstólar ekki annað en svarað því með þeim hætti að það sé ekki búið að lögfesta samninginn, þannig að menn byggi ekki beinan rétt sinn á samningnum.

Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji líklegt að dómstólar fari að útfæra einhvern rétt eftir t.d. 12. gr., sem hv. þingmaður kom inn á, um að aðildarríkin skuli viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins. Telur hv. þingmaður líklegt að dómstólar taki þessa grein og fari að búa til einhvern rétt ef staðan er sú að íslensk löggjöf sem um löghæfi fjallar t.d. hefur ekki verið útfærð eða aðlöguð að þeim rétti sem um ræðir í hverju tilviki? Ég er í sjálfu sér að spyrja kannski svona almennt um það hvaða augum hv. þingmaður lítur almenna löggjöf sem hefur einhverja almenna markmiðssetningu. Er það til velfarnaðar fallið, ég skil að þetta fólk reyni að byggja rétt sinn á því, það gera lögmenn fyrir hönd skjólstæðinga sinna, að fela dómstólum að útfæra réttinn nákvæmlega samkvæmt slíkum almennum markmiðsákvæðum í löggjöf?