samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég svo sem hóf ekki umræðuna um 12. gr. en það er kannski ágætt að nota hana í dæmaskyni vegna þeirra atvika sem ég nefndi í andsvari mínu við hæstv. ráðherra um hina raunverulegu stafrænu útilokun sem sumir fatlaðir einstaklingar verða fyrir í ljósi þróunar um rafræn skilríki og þess háttar. Ég er hins vegar ekki alveg endilega sammála hv. þingmanni um að allir séu sammála um að það þurfi að breyta lögræðislögum eða að það sé eitthvað einfalt að gera það með vísan til 12. gr. vegna þess að það koma auðvitað önnur sjónarmið þarna inn í. Það koma auðvitað inn sjónarmið sem kveða á um að fatlaðir einstaklingar eigi rétt á því að eiga ekki á hættu misnotkun á sínum fjármunum og annað slíkt sem er rótin að því að það hefur ekki gengið að veita þeim aðgang, sumum þeirra fatlaðra sem hafa ekki andlega heilsu til þess að veita upplýst samþykki sem er alfa og ómega þessarar rafrænu þjónustu.
Við erum hins vegar öll held ég sammála um að á þessu þarf að finna einhverja lausn, en ég er að benda á það að í mörgum þessara tilvika er ekki alveg einhlítt hvernig löggjöfin á að vera til þess að koma til móts við þessar þarfir fatlaðra. Það er í sumum tilvikum þannig að menn hafa tekið ákvarðanir og stjórnvöld og Alþingi talið sig vera að uppfylla þarfir fatlaðra en sjónarmiðin geta auðvitað verið ýmisleg. Ég tek dæmi um aðbúnað eða aðgengi allra í nýbyggingum eða byggingarreglugerðir. Þar stangast auðvitað á sjónarmið um hversu langt er hægt að ganga til þess að koma, og raunverulega kannski tæknilega líka, til móts við sjónarmið einhverra örfárra. Það er bara þetta sem ég er að nefna, að samningurinn sjálfur — þótt við séum sammála því að allir eigi að njóta aðgengis og allir eigi að hafa jafnan rétt, þá breytir það því ekki að það kallar á útfærslu í annarri löggjöf sem fjallar um tiltekið mál. Þar stendur hnífurinn í kúnni og það væri gaman að heyra hvort hv. þingmaður telji að það sé ekki enn þá þörf á bragarbót á íslenskri löggjöf almennt fyrir utan þennan samning áður en menn fara að byggja réttindi sín á samningnum.