samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Eins og kom fram í spurningum mínum til ráðherra og fyrri ræðu, þá leiðir það einfaldlega af samningnum sjálfum að aðildarríkin eigi að grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Það er verkefni löggjafans og stjórnvalda að einmitt nákvæmlega útfæra þetta, bara þannig að það sé alveg skýrt, og það kom ekki fram í máli mínu en mér finnst það ekki vera einfalt mál til að mynda að útfæra þessa þætti sem við ræddum hér varðandi nýtingu gerhæfis og lögræðis. En punkturinn er þessi, sem ég held að ég og hv. þingmaður séum sammála um, að hér vantar kortlagninguna, hér vantar planið og því sé heillavænlegast að ráðherrann, ráðuneytið og löggjafinn sjálfur taki forystu í því og móti rammann utan um þessi réttindi og það sé sem sagt misskilningur að það nægi eitt og sér að lögfesta samninginn, það þarf að fylgja honum eftir með nánari útfærslu.