157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:42]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið frá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Réttindin eru til staðar. Við erum búin að vera að vinna út frá þessum samningi mjög lengi. Það er búið að vera að vinna ákveðna vinnu milli sveitarfélaga og ríkisins. Það er búið að breyta kostnaðarskiptingunni. Það var áfangaskýrsla sem kom úr árið 2024 sem var unnin af þessum starfshópi og tillögur sem komu frá þeim, þannig að í raun og veru er löggildingin það eina sem er eftir. Að sjálfsögðu munu verða einhver réttaráhrif. Það munu hugsanlega verða einhver mál sem koma fyrir dómstóla en þá eru réttindi hinna fötluðu í málinu umtalsvert skýrari og þá er bara ábyrgðin okkar, okkar allra og stjórnvalda og ég treysti alveg ráðuneytinu og sveitarfélögunum til að eiga í þeim samræðum.