samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Við ræðum þetta brýna mál, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég vil byrja á að segja að mér fannst mjög áhugavert áðan að hlusta á skoðanaskipti hv. þingmanna sem eru löglærðir og voru að velta fyrir sér þessari lögfestingu og hver áhrif hennar geti orðið á dómaframkvæmd. Við höfum rætt það áður, þeir sem hafa tekið til máls í dag og á síðasta þingi þegar þessi málefni voru líka á dagskrá, og það skal ekki koma neinum á óvart að ég ætli að fara að ræða kostnaðarmatið sem vantar og mögulegan kostnað sem þessi innleiðing kemur til með að hafa eða getur a.m.k. haft. Það eru augljóslega skiptar skoðanir á því. Fyrr á þessum fundi tók hæstv. fjármálaráðherra undir það að þótt um verulega réttarbót yrði að ræða þá yrði kostnaðurinn ekki umfangsmikill. Kostnaðurinn ekki umfangsmikill, kostnaðurinn enginn segir annars staðar og þar fram eftir götunum þannig að þetta stemmir ekki allt saman. Ef þessi auknu réttaráhrif hafa engin áhrif á sveitarfélögin og þá sem eru að borga fyrir þá þjónustu sem aukin réttaráhrif munu hafa þá skilur maður ekki alveg af hverju það er svona mikilvægt að lögfesta samninginn. Ef áhrifin eru bara engin þá eru þau engin, hvorki á þá sem þjónustunnar vænta né kostnaðarlega.
Það hefur verið gert frekar lítið úr þeim greiningum sem hafa verið gerðar og þeim umsögnum sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samband íslenskra sveitarfélaga og fleiri hafa sent inn á fyrri stigum gagnvart þessum þætti málsins. Það kemur m.a. fram í greiningu HLH Ráðgjafar, sem hefur einbeitt sér að þessum málaflokki hjá ríki og sveitarfélögum, að það sé mikil óvissa fólgin í þróun fjölda einstaklinga sem munu eiga rétt á þjónustu. Það er svo mikil óvissa í því. Í þeirra greiningum er verið að reyna að átta sig á því hver þróunin getur orðið miðað við þróun undanfarinna ára, miðað við biðlista og stöðu í þessum málaflokki og, eins og hér hefur margoft komið fram, er álitið að í framkvæmd geti þetta leitt til 14–19 milljarða kr. kostnaðarauka.
Eins og ég hef sagt áður þá snýst þetta auðvitað ekki um lögfestinguna. Við erum öll sammála um mannréttindi. Við erum öll sammála því að þjónusta við fatlaða einstaklinga sé eins og best verður. En við þurfum að sýna þá ábyrgð að átta okkur á því að ef þetta á raunverulega að skipta einhverju máli, ef það er svona mikilvægt að klára þessa lögfestingu, þá hlýtur hún að skipta máli og þá hlýtur hún að hafa áhrif á kostnað. Hún hlýtur að kosta eitthvað.
Ég tek undir það sem hefur komið hérna fram og ekki síst í máli hv. þm. Jóns Péturs Zimsens rétt áðan, það þarf að tryggja að fjárhagslegir burðir sveitarfélags séu fyrir hendi. Sveitarfélögin eru gríðarlega misjöfn hvað það varðar og veita auðvitað mjög misjafna þjónustu og stuðning í þessum málaflokki. Þunginn er hér á höfuðborgarsvæðinu, algerlega, langmesti þunginn og það vantar enn milljarða, kannski á bilinu 5–7 milljarða, ég er ekki alveg með nákvæmar nýjustu tölur, til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eins og staðan er núna. Þrátt fyrir leiðréttingar og breytingar sem eru góðra gjalda verðar og hafa verið nauðsynlegar þá vantar enn milljarða inn í kerfið eins og staðan er núna til þess að málaflokkurinn standi undir sér.
Það eru 14 ár síðan málaflokkur fatlaðs fólks var fluttur frá ríkinu til sveitarfélaganna og margt sveitarstjórnarfólk, eða sumt hvert alla vega, hafði áhyggjur af því að þetta yrði raunin, að málaflokkurinn yrði vanfjármagnaður. Þegar þjónustan er komin svona nálægt kjörnum fulltrúum, er veitt svona beint í nærsamfélögunum, þá er einhvern veginn tilhneiging til þess að hlutirnir hækki í verði, það verði hækkaður kostnaður. Það var einmitt um það sem t.d. þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, Ármann Ólafsson, skrifaði grein og kom fram opinberlega þar sem hann lýsti þeim áhyggjum að þetta gæti orðið ofboðslega þungt fyrir sveitarfélögin og það yrði að passa upp á þessa fjárveitingu, það yrði að passa upp á þetta fjármagn.
Frá því að samningurinn var lögfestur árið 2018 voru náttúrlega gerðar enn frekari kröfur af hálfu ríkisins til sveitarfélaganna og eins og ég segi oft þá er svo dapurt að vera að tala um kostnað við þennan málaflokk, eins og margt annað. Við viljum gera vel. En við þurfum að sjá fyrir endann á hlutunum og við getum ekki sett rekstur sveitarfélaga í uppnám ef því er að skipta ef eitthvað þannig kæmi upp. Við þurfum, eins og hér kom fram í máli hv. þm. Jóns Péturs Zimsens áðan, að hafa einhverja tryggingu fyrir því að ef eitthvað gerist í dómaframkvæmd og eftir þessa lögfestingu þá verði hugsað fyrir því.
En fyrst og fremst er náttúrlega ekki gott — ég bara frábið mér það enn einu sinni að við séum vænd um það, við sem erum að benda á þetta, hvort sem það eru þingmenn eða kjörnir fulltrúar annars staðar, að vilja ekki fötluðu fólki allt hið besta. Það eru útúrsnúningar. Það er í sveitarstjórnarlögum að okkur ber að kostnaðarmeta verkefni eins og þetta. Við eigum að kostnaðarmeta. Ég veit ekki betur en að í einu af málum núverandi meiri hluta hér á Alþingi var lögð sérstök áhersla á það að kostnaðarmeta lög sem væri verið að setja hérna og breytingar, sama hvar sá kostnaður á svo að lenda.
Hér áðan í andsvari við hæstv. félagsmálaráðherra kom ekki fram svar við því — ég hef alveg skilning á því, það er kannski einhver í ráðuneytinu sem getur svarað okkur með það eða við getum kynnt okkur það sjálf — af hverju lögfestingin hefur ekki átt sér stað á hinum Norðurlöndunum. Það hefur nú verið sagt úr ræðustóli hér að það sé bara ekki rétt. En það kemur fram á bls. 30 í greinargerðinni með frumvarpinu að öll Norðurlöndin hafi fullgilt samninginn eins og Ísland, en samningurinn hafi hins vegar ekki verið lögfestur í heild sinni annars staðar á Norðurlöndum. Og það er einhver ástæða fyrir því. Ég myndi alla vega vilja fá einhverjar greiningar á því vegna þess að þótt við séum auðvitað bara að fjalla um okkar land og okkar samfélag þá er samt áhugavert að heyra af reynslu annarra þjóða og þeirra þjóða sem við berum okkur helst saman við. Hver er ástæða þess að hann hefur ekki verið lögfestur annars staðar?
Það fórst fyrir hjá hæstv. ráðherra að svara því líka, kannski fæ ég svar síðar, hvort hún telji að það kæmi til greina að færa fjárhagslega ábyrgð málaflokksins aftur til ríkisins. Nú eru að koma sveitarstjórnarkosningar og það er kjördæmavika í næstu viku og þar fram eftir götunum. Við erum í góðu samtali, kjörnir fulltrúar, sama hvar þeir eru. Þetta verður áhersla á að fá svör við þessum þáttum, svör við því hvernig menn sjá þetta fyrir sér. Því fyndist mér áhugavert að fá það fram frá hæstv. ráðherra, annaðhvort núna eða síðar, hvort hún sjái fyrir sér að sveitarfélögin hreinlega skili málaflokknum og fjárhagsleg ábyrgð verði aftur í höndum ríkisins en það gerði þá samninga við sveitarfélögin um að útfæra þjónustuna. Það gæti komið til greina að mínu mati. Ég hef sagt það áður, sú umræða kemur alveg upp á meðal sveitarstjórnarfólks hvort það eigi að óska eftir þeirri leið þannig að við þurfum að vera búin undir það að svara því eða ráðherrann. Ég er þeirrar skoðunar að mér fyndist það koma til greina en fæ kannski svar frá hæstv. ráðherra síðar um það hvort hún sé mér sammála í því.
Það hefur verið gert að mínu mati frekar lítið úr þessum áhyggjum af kostnaðaráhrifum. Í umsögn frá Reykjavíkurborg þá segir m.a., með leyfi forseta:
„Jafnvel þótt að í 6. kafla greinargerðar með umræddu frumvarpi sé fjallað um mat á áhrifum þess verði það að lögum og þar því haldið fram að ekki sé gert ráð fyrir að það muni hafa áhrif á fjárhag sveitarfélaga umfram það sem nú þegar leiði af skyldum sveitarfélaga til að tryggja réttindi fatlaðs fólks þá byggist sú fullyrðing ekki á mati á fjárhagslegum áhrifum. Þannig virðast stjórnvöld ríkisins ekki telja þörf á því að fram fari kostnaðarmat á áhrifum á tillögu lagafrumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga en því er Reykjavíkurborg alfarið ósammála.“
Fulltrúar höfuðborgarinnar leggja áherslu á það og klykkja út með því að það sé brýn þörf á þessu kostnaðarmati.
Við munum fara með þetta mál aftur inn í hv. velferðarnefnd og fara yfir umsagnir, það koma kannski nýjar, og fara yfir þær sem komu á síðasta þingi og fara yfir málið í heild sinni. Við munum hugsanlega heyra aftur í þeim sem höfðu hvað mestar efasemdir um þetta og óttast þennan kostnað. En burt séð frá því þá legg ég áherslu á að þetta er ekki bara eitthvert mál ríkis og sveitarfélaga heldur er það bara ábyrgari framkvæmd og ábyrgari lagasetning að standa við það sem kveðið er á um, við eigum að kostnaðarmeta lagasetningu eða ný lög eða breytingar á lögum, hvort sem er um að ræða ríki eða borg og sveitarfélög sem greiða. Ég hef náttúrlega áhyggjur fyrir hönd sveitarfélaganna af því að þau hafi bolmagn til að sinna þessum málaflokki ef til einhverra aukinna réttinda kemur, sem hlýtur náttúrlega að vera markmiðið með þessu, og þá aukins kostnaðar. En það er líka ábyrgara, þótt ríkið sjálft væri eini aðilinn sem stæði undir kostnaðinum, að kostnaðarmeta svona stórar breytingar og stórt mál eins og þetta. En ég ítreka að það er hið besta mál að lögfesta samninginn. (Forseti hringir.) En það varpar eilitlum skugga á að ekki sé reynt að kostnaðarmeta og það sé gert svona lítið úr þessum áhyggjum sem aðilar hafa.