157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:04]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skil hvað þingmaðurinn er að fara. Þegar samið er við aðila reynir maður að setja ekki fram hvað maður hyggst fá fyrir t.d. lóðir eða annað slíkt. Ég tel hins vegar að það væri bara hv. velferðarnefnd dálítið hollt núna, og það var nú formaður hennar sem var hér í pontu, að fara yfir þetta með þeim sem hafa verið að gera þessa greiningu. Við erum endalaust að vitna í hana og niðurstaða hennar er helsti rökstuðningur í málinu af hálfu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem og það hvernig komist er að niðurstöðunni. 14–19 milljarðar getur vel verið tala sem er of vel í lagt með en vert væri að fara yfir það með aðilunum hvað það er nákvæmlega sem þeir verðmeta svona og meta næstu skref í málinu aðeins út frá því. Ég skil alveg að við neglum kannski ekki niður nákvæma tölu heldur áttum okkur á því að það geti verið ákveðnir milljarðar. Mig langar því að spyrja ráðherrann — nei, ekki ráðherra, hún er hérna í salnum og fipar mig aðeins hér, bara hið besta mál. En mig langar að spyrja á móti: Fyndist hv. þingmanni ekki koma til greina að festa alla vega í þetta frumvarp að ríkið muni taka þann kostnað sem mögulega af þessu hlýst, sem vonandi verður enginn eins og bjartsýnt fólk hér inni telur, hvort það sé eitthvað sem væri hægt að líta til?