157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:06]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur hennar fyrsta svar við mínum andsvörum. Ég held að það væri álíka óábyrgt og bara svolítið út í hött að fara að taka það fram í þessum samningi hvað ríkið muni gera. Hins vegar vitum við að það er alveg einstakt samstarf núna milli ríkis og sveitarfélaga. Þetta er í fyrsta sinn sem ríki og sveitarfélög taka höndum saman í kringum ótrúlegustu mál, uppbyggingu hjúkrunarheimila, börn með fjölþættan vanda o.s.frv. Ég skil þó áhyggjur sveitarfélaganna. Það hefði verið mjög óeðlilegt ef Reykjavíkurborg hefði ekki sent sína fulltrúa fyrir nefndina með þessar áhyggjur því sagan kennir okkur að stundum hafa sveitarfélögin fengið verkefni sem þau hafa ekki ráðið fjárhagslega við. Því væri mjög skrýtið ef sveitarfélögin hefðu ekki nefnt þessar áhyggjur. En við þurfum ekkert að stressa okkur yfir þessu. Varðandi þessa greiningu HLH sem oft hefur verið vitnað til og ég er búin að liggja yfir og ræða við þá félaga og feðga sem gerðu þessa greiningu, þá er aðalþátturinn húsnæðismálin. Það er horft til þessarar vegferðar og endapunkts ef allir hefðu húsnæði og enginn biðlisti væri og það er sá peningur sem er nefndur í skýrslunni. Það eru biðlistar í húsnæðismálum. Það er gaman frá því að segja að um þessar mundir er Reykjavíkurborg einmitt að endurskoða uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk og það er í gangi hvort sem þessi samningur er lögfestur eða ekki. Þannig að það sem hefur komið fram hjá hæstv. ráðherra er nákvæmlega að öll þessi verkefni eru í gangi á fullu og það gildir einu hvort lögfesting samningsins verður eða ekki. Þannig að þetta hangir ekki allt endilega bara á því. Hér eru bara verkefni sem eru skylda á herðum sveitarfélaganna og verið er að vinna að stöðugt. Þetta er löng vegferð enda var innviðaskuldin gríðarleg. (Forseti hringir.) Í mörg ár hefur ekki verið byggt nóg, hvorki fyrir fólk almennt né fatlað fólk.