157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:26]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína hér um þetta mikilvæga málefni. Í ræðu minni áðan ræddi ég um að þetta væri mál sem skipti fatlaða sérstaklega miklu máli. Orðræða hv. þingmanns áðan, hvernig hann lagði út orðræðu þeirra sem vildu tryggja samninginn í framkvæmd, er sérkennileg. Hér hefur verið talað um að sveitarfélögin fari á hausinn eða það myndi skilja þau eftir í rjúkandi rúst. Svona orðræða er ekki heppileg í neinum málum, hvað þá málum sem fjalla um viðkvæma hópa.

Hv. þingmaður talar um að hér verði rennt blint í sjóinn. Ég held að ekkert frumvarp ætti að vera samþykkt þannig að menn séu að renna blint í sjóinn með þau. Það er einfaldlega óábyrgt. Það að fatlaðir geti veifað samningnum og bíði eftir að hann verði lögfestur skil ég mjög vel og tek undir það að fatlaðir ættu að geta gert það.

Svo kom líka fram í ræðu hv. þingmanns að við höfum vítin til að varast. Sveitarfélögin hafa oft verið skilin eftir úti í kuldanum en það gerist bara ekki núna, þrátt fyrir að við ætlum að renna blint í sjóinn. Þetta er ekki orðræða sem ég kann við. Ég væri til í að fá bara tryggingu fyrir því frá ríkisstjórninni og frá hv. þingmanni og spyr hann: Mun Flokkur fólksins sjá til þess, ef það myndast aukakostnaður, að sá kostnaður verði greiddur af ríkinu? Er hægt að fá tryggingu fyrir því hér í púlti?