157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:28]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvarið. Ég held að það sé nú frekar kannski orðalag sem þingmaðurinn var að gagnrýna mig fyrir, að ég væri ekki alveg með besta orðalagið. Ég virðist eiga það svolítið til að taka stundum allt of sterkt til orða. Varðandi rjúkandi rúst þá var það nú þannig samt sem áður að mörg sveitarfélög voru býsna kvíðin þegar NPA-samningarnir komu og þeim fjölgaði skyndilega, þá með gríðarlega háum upphæðum, þau óttuðust að illa færi fjárhagslega. Rjúkandi rústir eru stundum bara — það er tekið svona til orða. Ég vil biðja hv. þm. Jón Pétur Zimsen að virða það við mig að taka stundum sterkt til orða en það er ekki illa meint.

Varðandi barnasáttmálann þá var rennt blint í sjóinn. Það var bara gert. Það var gríðarlega óábyrgt, sannarlega, greinilega. En við myndum ekki vilja fara til baka og hafa ekki gert það. Erum við kannski að tala um að það sé bara betra að lögfesta samninginn um réttindi fatlaðs fólks alls ekki? Viljum við það frekar af því að við erum svo ofboðslega hrædd um að allt fari illa og af því að við treystum okkur ekki til að setja á hann tölu? Nei, ég held ekki. Stundum þarf maður líka bara að hafa áræðni og kjark til að taka skref og það getur ekkert verra gerst en að við tökum okkur saman í andlitinu og gerum betur fyrir fólk með fötlun. Ég er alla vega þannig gerð að ég vil ekki láta einhverja hræðslu og kvíða aftra mér við að taka skrefið. Auðvitað verður sveitarfélagið ekki skilið eftir illa statt ef það kemur eitthvað upp. Það er búið að segja það hér að ef það koma upp einhverjar sérstakar aðstæður, sem við getum ekki séð fyrir núna, eins gott samstarf og er á milli ríkis og sveitarfélaga núna, þá verður það auðvitað sérstaklega skoðað. Hvers lags ríkisstjórn væri það sem myndi bara hunsa það? Það er ekki þessi ríkisstjórn.