samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svar hennar við andsvari mínu. Hér var spurningunni ekki svarað fullkomlega, en vísir að svari. Þeir sem vilja fylgja ábyrgri lagasetningu eru ekki áræðnir eða kjarkaðir. Þeir eru bara haldnir ótta og kvíða. Þetta er eitthvað sem er sérstakt og mér finnst ekki gott. Það kemur fram að sveitarfélögin hafi oft verið skilin eftir úti í kuldanum, það kom fram í máli hv. þingmanns í fyrra svari við andsvari. Það sem kemur fram í greinargerðinni — greinargerðirnar stangast á. Það er talað um, svo ég vísi beint í greinargerðina, að lögfestingin geti leitt til verulega aukinna skyldna fyrir sveitarfélög. Þetta kallar mögulega á aukið fjármagn. Mér heyrðist þingmaðurinn ætla að tryggja að það fjármagn kæmi frá ríkinu ef þetta verður að lögum, sem við vonum.
Það er ekki orðalagið þrátt fyrir að ég nefni það. Það er að geta ekki tekið umræðuna á það plan án þess að ata hana út í einhverjum orðum eins og kvíði, áræðni, kjarkur og þor. Það er ekki það. Við viljum bara ekki að fatlaðir verði skildir eftir þar sem ríki og sveitarfélög kasta á milli sín boltanum. Hver á að bera aukakostnað ef hann kemur fram? Það er alveg þekkt í fleiri löndum að það mun myndast aukakostnaður. Þá vilja sveitarfélögin og fatlaðir vita að ríkið muni grípa þann bolta. Það er í raun ábyrgt. Það er sanngjarnt gagnvart fötluðum og sveitarfélögunum.