samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir síðara andsvar. Ég var borgarfulltrúi í sex og hálft ár í tíð ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Ég man vel eftir áhyggjum sveitarfélagsins Reykjavíkur og svona karpi við ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar um NPA-samningana sérstaklega. Mér eru þeir sérstaklega minnisstæðir vegna þess að þeim fjölgaði skyndilega og þeir kosta. Þar var sveitarfélagið bara dálítið skilið eftir úti í kuldanum, ég vil bara fá að orða það þannig. Þetta var gríðarlega erfitt og þeir sem ekki fengu þessa samninga voru náttúrulega reiðir og það bitnaði á sveitarfélaginu sem réð ekkert við þennan mikla kostnað. Það eru alveg dæmi um þetta.
En hér erum við að tala um sameiginlega ábyrgð ríkis og borgar, að sjálfsögðu. Ég trúi ekki að hv. þingmaður trúi því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur muni einhvern tímann skilja fatlað fólk eftir úti í kuldanum og láta einhverjar deilur milli sveitarfélaga og ríkis bitna á þeim. Ég vil segja að það eru alveg óþarfaáhyggjur. Það er gott samstarf milli ríkis og sveitarfélaga eins og við höfum séð með uppbyggingu hjúkrunarheimila og fleira, börn með fjölþættan vanda. Þessi tvö kerfi eru að tala virkilega vel saman í fyrsta skipti, finnst mér þegar ég lít yfir hina pólitísku flóru, langt aftur í mínu lífi. Þarna verður sameiginleg ábyrgð. En mér finnst jafn óábyrgt að ætlast til að það sé einhver tala sett á eitthvað (Gripið fram í.) sem maður er ekki nákvæmlega viss um hvað verður eins og með dómaáhrifin, alveg eins og það að segja að það eigi að kostnaðarmeta allt og kostnað áhrifa af þessu. En það er sannarlega gott ef hægt er að kostnaðarmeta og það er gert (Forseti hringir.) í langflestum málum hér. Það er kostnaðarmetið og ef það er hægt að kostnaðarmeta þá á að gera það og það er sannarlega ábyrgt. En stundum eru bara málin þessleg að það er ekki hægt og bara virkilega erfitt og óábyrgt.