157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:35]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að stinga mér aftur og áfram inn í þessa umræðu. Ég tek undir það að það var svona frekar óheppilega orðað sumt hér áðan en hv. þingmaður er búinn að svara fyrir það. Þetta snýst einmitt um, eins og þingmaðurinn kom inn á í ræðu sinni, að það var nefnt hér að það væru mörg hundruð manns að bíða eftir húsnæðislausn fyrir sig í Reykjavík einni, held ég, svei mér þá, mörg hundruð manns. Þetta snýst einmitt um það að þótt verið sé að bregðast við, þótt verið sé að byggja íbúðakjarna og annað slíkt sem flest sveitarfélög hafa mikinn metnað í að gera eins og efni og aðstæður leyfa, að þá snýst þetta einmitt um það að það er þessi húsnæðisþáttur sem er svo kostnaðarsamur. Hv. þingmaður var að tala um að hér hefði farið í gegn lögfesting á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og út af hverju allt hefði ekki rokið upp í kostnaði. Það er að mínu mati algjörlega annars eðlis. Hér snýst málefnið mjög mikið um búsetuúrræði og húsnæðismál og það er náttúrlega gríðarlegur kostnaðarliður, þannig að það vildi ég leggja inn í þessa umræðu, að það er kannski aðeins ólíku saman að jafna. Barnasáttmálinn og lögfesting hans var meira svona stefna og markmið sem hefur verið unnið eftir og ákvarðanir hafa verið teknar í skömmtum sem sveitarfélögin og ríkið hafa treyst sér til.

Ég tek undir með hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, mér finnst eins og það sé kominn einhver vilji til þess að tryggja hreinlega að fjármagn komi frá ríkinu muni dómsmál leiða til gríðarlega aukins kostnaðar hér og þar og langar að spyrja hvort það sé réttur skilningur.