samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar andsvar. Það hefur alla vega frá því að ég kom inn í borgina 2018 alltaf verið mjög langur biðlisti eftir húsnæði. Ekki bara biðlisti eftir húsnæði fyrir fatlað fólk heldur líka félagslegu húsnæði og það hefur virkilega verið skortur á húsnæði. Það er síðan núna nýlega í borgarráði, sé ég í fundargerðum, verið að endurskoða uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk. Ég ætla ekki að fara að lesa þetta upp enda tæki það allan tímann en það er metnaðarfyllra plan í gangi hjá borginni núna, það á að gera betur og einnig með félagsbústaði. Þetta horfir því til betri vegar þótt talsvert langt sé í land af því að það vantar húsnæði. Þetta er verkefni sveitarfélaga sem sveitarfélag eins og Reykjavík, stærsta sveitarfélagið, er auðvitað bara að sinna og gera eins vel og það getur með sína fjármuni. Á hverju ári þá bætist við og fleiri fá húsnæði þannig að þessi vandi, þessi langa vegferð, leysist ekki fyrr en búið verður að byggja nægilega mikið sem ég get ekki sagt til um hvenær verður. Ég veit því ekki alveg hvernig ég á að svara þessu. Þetta er það sem er reyndar kjarninn í þessari úttekt sem HLH-hópurinn gerði þannig að þetta kostar sannarlega. Það fylgja ekki tölur, það er ekki kostnaðarmat í frumvarpinu um lögfestingu samningsins. Hins vegar, í ljósi samvinnu, þá er þetta samt sem áður samvinnuverkefni, þannig að ef eitthvað óvænt kemur upp sem ekki er fyrirsjáanlegt núna, hvort sem það verður vegna dóma eða hvað, þá verður auðvitað að endurskoða þetta. Við sem stöndum að baki þessari ríkisstjórn myndum aldrei taka annað í mál en að sjá þetta sem einhvers konar sameiginlega ábyrgð ef eitthvað óvænt gerist, ef algerlega ófyrirsjáanlegar aðstæður koma upp sem munu kosta sveitarfélagið aukapening (Forseti hringir.) sem ekki er fyrirsjáanlegt. Ég get eiginlega ekki svarað þessu öðruvísi, það er einhvern veginn þannig sem ég vil svara þessu.