samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni Sigríði Á. Andersen fyrir hennar ræðu. Mér leikur forvitni á að vita núna 12 árum eftir að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur hvað henni finnst um það hvernig hefur gengið. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður var á þingi 2013 en ef svo er spyr ég hvort hún hafi verið sammála þeirri lögfestingu eða verið með sömu fyrirvara, áhyggjur, beðið um kostnaðarmat eða fundist að aðrir þingmenn sem þá voru hér hefðu átt að biðja um kostnaðarmat, því að ég held að öruggt sé að ekkert var talað um kostnaðarmat á þeim tíma í tengslum við þann samning. Mig langar að heyra viðhorf hennar. Önnur spurning snýr að því hvort við höfum getað lært eitthvað af þessum samningi, barnasáttmálanum, fyrir þann sem við erum að lögfesta núna og hvernig það allt saman hefur þróast. Ég tel þetta vera mjög sambærileg mál að mörgu leyti þó að hópurinn sé annar, þ.e. börn og síðan fatlaðir einstaklingar en þar eru auðvitað börn líka. Það væri gaman að heyra af því — já, kannski skil ég það vel að fólk sé almennt séð ekki hlynnt þessu eða telji þetta ekki vera gott en það hefði þá mátt ætla að svipað hefði gilt um barnasáttmálann.