samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Nei, ég var ekki á þingi þegar samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var lögfestur hér. Ég myndi segja að heilt yfir sé kannski ólíku saman að jafna, þessum samningi fatlaðs fólks eða réttindum barnsins, einkum og sér í lagi vegna þess að börn almennt eru ekki aðilar og þau hafa ekki forræði á sínum málum og þau hafa ekki sjálf frumkvæði að því að leita réttar síns og þar fram eftir götunum. En það hefur auðvitað oft reynt á eða ekki reynt á samninginn sjálfan um réttindi barnsins en til hans er oft vísað fyrir dómstólum en yfirleitt í flútti eða með annarri skilmerkilegri löggjöf. En það hefur ekki verið átakalaust og sitt sýnist hverjum um svona markmiðasetningu eins og t.d. að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðilar eða dómstólar eða stjórnvöld gera ráðstafanir sem varða börn. Um þetta er deilt í nánast hverju einasta forsjármáli sem er rekið fyrir dómstólum. Hvað þýðir þetta í samningnum? Hefur eitthvert barn fengið réttindi sín samkvæmt þessum samningi? Þetta er auðvitað bara almenn markmiðssetning. Auðvitað viljum við öll taka ákvarðanir sem eru barni fyrir bestu en ég held að ég geti nánast fullyrt að í hverju einasta forsjármáli sé deilt um nákvæmlega þetta, hver á að fá forsjána? Hvað er barni fyrir bestu? Og þetta hefur kannski orðið svolítið til þess einmitt að opinberir aðilar sem þurfa að úrskurða í slíkum málum geti kannski núna bara vísað í þennan samning og sagt: Ja, við teljum bara barni fyrir bestu að þetta verði svona. En ég get alveg fullyrt að menn eru ekki alltaf sammála um það. Ég held samt heilt yfir að þarna sé ólíku saman að jafna, því málaflokkarnir sem heyra undir barnið eru aðeins öðruvísi. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að segja léttvægari en þeir eru ekki eins miklir að umfangi og þegar kemur að fötluðu fólki.