157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:05]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að ég er ekkert sérstaklega að tapa mér í umræðunni um eitthvert kostnaðarmat gagnvart sveitarfélögum eða ríkinu, heldur bara hinu almenna mati á áhrifum þess að innleiða svona alþjóðasamning með lögum, þ.e. það hefði líka mátt vera umfjöllun um það, sérstök fræðileg umfjöllun, hversu bættari menn eru við að lögfesta samninginn á móti, eins og hefur verið, fullgildingunni. Mér finnst vanta allt kjöt á beinin í greinargerð með þessu frumvarpi vegna þess að það hefði bara verið mjög áhugavert og hefði verið holl hugarleikfimi fyrir ráðuneytið, að setja það aðeins niður á blað, velta því fyrir sér og leggja það á borð fyrir okkur, fyrir þingið, hverju þetta breyti einkum og sér í lagi vegna þess að það kemur fram í greinargerðinni að með frumvarpinu eigi í raun ekki að auka við réttindi fatlaðs fólks. Það er því afstaða ráðuneytisins að ekki sé verið að auka við réttindi fólks. Þetta á ekki að hafa áhrif á fjárhag ríkis eða sveitarfélaga, þannig að ekki er gert ráð fyrir að réttindin verði aukin. Mér finnst blasa við að það þurfi þá að svara spurningunni: Til hvers eru þá refirnir skornir? Til hvers er þá verið að lögfesta samninginn í stað þess að eyða orkunni í að laga það sem við vitum að þarf að laga þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks, bæði í ljósi þessarar löggildingar og þátttöku okkar í þessum samningi, en einnig bara með vísan til almennrar og heilbrigðrar skynsemi í málefnum fatlaðs fólks.