fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994. Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og er nú endurflutt. Efnislega er frumvarpið óbreytt en þó hefur verið brugðist við tillögum um orðalagsbreytingar sem fram komu í nefndaráliti velferðarnefndar Alþingis á síðasta löggjafarþingi.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögunum sem hafa það að markmiði að stuðla að jákvæðari umgjörð um dýrahald í fjöleignarhúsum. Frumvarpinu er þannig ætlað að liðka fyrir hunda- og kattahaldi fólks óháð efnahag og búsetu en gildandi reglur fjöleignarhúsalaganna hafa leitt til þess að íbúar fjöleignarhúsa hafa átt minni möguleika á slíku dýrahaldi en fólk sem býr í sérbýli eða með sérinngang eða eitthvað slíkt. Verði frumvarpið að lögum mun það auka jafnræði gæludýraeigenda hvað varðar húsnæðisvalkost ásamt því að stuðla að meira húsnæðisöryggi þeirra. Ég tel að um gríðarlega mikilvægt réttlætismál sé að ræða og ég er stolt af því að mæla fyrir því enn á ný hér í dag.
Forseti. Við heyrum sífellt meira um mikilvægi þess að styðja við andlega heilsu fólks, sérstaklega í samfélagi þar sem einmanaleiki, streita og kvíði eru meðal algengustu áskorana. Ráðuneyti mitt ýtti í þessu sambandi úr vör síðasta vor sérstakri vitundarvakningu um félagslega einangrun undir heitinu Tölum saman, enda er félagsleg einangrun og einmanaleiki mun algengari í okkar samfélagi en flesta grunar.
Á undanförnum árum hafa áhrif gæludýra á líðan fólks fengið aukna athygli. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að nærvera gæludýra eykur vellíðan, dregur úr einmanaleika og ýtir undir hreyfingu og útiveru. Margir líta á hund eða kött sem fjölskyldumeðlim og mikilvægan félaga þeirra sem búa einir, ekki síst eldra fólks og ungs fólks í viðkvæmri stöðu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur skilgreint félagslega einangrun sem lýðheilsuvanda til jafns á við reykingar, ofneyslu áfengis, offitu og fleiri stórfelldar ógnir við almannaheilsu. Í þessu sambandi telur stofnunin að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks.
Forseti. Sem samfélag höfum við skyldu til að búa til umgjörð sem gerir fólki kleift að halda gæludýr með ábyrgum hætti í fjölbýli líkt og einbýli. Það er ekki einungis spurning um dýrahald heldur um lýðheilsu, félagslegt öryggi og ekki síður jafnræði óháð efnahag og óháð húsnæðiskosti. Í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi ganga reglur um hunda- og kattahald í fjölbýli út á það að dýrahald sé leyft nema sérstakar og málefnalegar ástæður mæli gegn því. Húsfélög þar geta sett dýrahaldi skorður en þurfa þá að rökstyðja þær með tilvísan í hagsmuni íbúa, t.d. vegna ofnæmis eða ónæðis. Á Íslandi er því öfugt farið. Hér þarf fólk að fá samþykki fyrir því að halda hund eða kött. Þetta er úrelt og ólíkt því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Með frumvarpinu færist Ísland nær þeirri sanngirni sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.
Forseti. Í dag búa margir gæludýraeigendur í fjölbýlishúsum við reglur sem í raun gera þeim erfiðara, ef ekki ómögulegt, að búa með dýrum sínum. Fólk í einbýlishúsum þarf ekki að leita samþykkis til þess að halda hund eða kött en fólk í fjölbýli getur þurft að fá samþykki tveggja þriðju hluta annarra eigenda í húsinu. Þetta skapar kerfisbundið misræmi sem frumvarpið sem hér er til umræðu leitast við að leiðrétta.
Ég mun nú gera grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Lögð er til sú þýðingarmikla breyting að samþykki annarra eigenda verði ekki lengur skilyrði fyrir því að einstaklingur megi halda hund eða kött í fjölbýli, jafnvel þótt íbúðir deili sameiginlegum stigagangi. Aftur á móti geti húsfélög sett reglur um gæludýrahald, svo lengi sem þær eru málefnalegar, eðlilegar og byggðar á jafnræði. Slíkar reglur geta eðli málsins samkvæmt ekki gengið svo langt að girða fyrir hunda- og kattahald í fjölbýlishúsinu en með þeim geta eigendur sammælst um nánara fyrirkomulag dýrahalds síns, svo sem um umgengni og afnot af einstökum hlutum sameignar. Þetta er algjörlega ný nálgun sem endurspeglar það sem tíðkast í nágrannaríkjum okkar þar sem dýrahald er heimilt nema ríkar ástæður mæli gegn því.
Í ljósi þess að lagt er til að hunda- og kattahald verði ekki háð samþykki annarra eigenda er samhliða lagt til að fellt verði brott ákvæði um að leyfi sveitarfélags fyrir dýrahaldi þurfi að liggja fyrir svo að samþykki fáist fyrir því og eigandi að skila inn afriti af leyfinu til stjórnar húsfélagsins. Þykir það einnig eðlilegt í ljósi þess að sveitarfélög fara með eftirlit með skráningar- og leyfisskyldu dýra. Áfram er gert ráð fyrir að húsfélög geti lagt bann við dýrahaldi ef dýrið veldur verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigandi bregst ekki við áminningum húsfélags og ræður bót þar á. Í því sambandi er þó lagt til að samþykki tveggja þriðju hluta eigenda þurfi fyrir slíku banni í stað einfalds meiri hluta eins og er í dag.
Ekki er hægt að banna hunda- og kattahald í fjölbýlishúsi í heild sinni á grundvelli þessarar heimildar heldur tekur hún til banns við dýrahaldi í einstökum tilvikum. Gæti heimildin t.d. náð til tilvika þar sem mikið og langvarandi gelt hunds hefur valdið öðrum eigendum verulegum ama, ónæði eða truflun og eigandanum hefur ekki tekist að ráða bót á þrátt fyrir áminningu frá húsfélaginu. Í því sambandi verður húsfélagið þó að veita eigandanum tækifæri og svigrúm til að grípa til viðeigandi ráðstafana, svo sem með liðsinni hundaþjálfara, til að breyta hegðun dýrsins í slíkum tilvikum. Jafnframt verður að meta hverju sinni hvort um sé að ræða svo verulegan ama, ónæði eða truflun að umrætt ákvæði eigi við. Dýrahald er að sjálfsögðu eðlilegur hluti af heimilishaldi og verður að gera ráð fyrir að því geti fylgt nokkuð ónæði líkt og annarri umgengni fólks í fjölbýli.
Undir þessa heimild geta einnig fallið tilvik þar sem um er að ræða mikið ofnæmi og eigandanum hefur ekki tekist að ráða bót á þeim ama sem dýrið veldur viðkomandi að því leyti. Hér verður einnig að veita eiganda dýrsins svigrúm til að leita lausna, svo sem með því að koma til móts við þarfir íbúa með ofnæmi með því að ná að lágmarka áhrif dýrahaldsins á viðkomandi. Til dæmis gæti eigandi dýrsins og íbúi með ofnæmi e.t.v. komið sér saman um hentugan tíma sem dýrið má fara um sameignina þannig að það hitti ekki fyrir íbúann með ofnæmið. Hér skiptir höfuðmáli að vera lausnamiðaður. Í langflestum tilvikum ætti að vera hægt að búa svo um hnúta að dýrið geti áfram verið hjá eiganda sínum.
Áfram er gert ráð fyrir að í lögunum verði að finna ákveðnar lágmarksreglur um umgengni. Þannig verði áfram kveðið á um að hundar og kettir megi ekki vera í sameign eða á sameiginlegri lóð nema þegar verið er að færa dýrin að og frá sameign. Hundar skuli ávallt vera í taumi og í umsjón manns sem hefur fulla stjórn á þeim. Lausaganga hunda í sameign eða á sameiginlegri lóð teljist alvarlegt brot sem valdið geti því að dýr verði bannað. Ekki er gert ráð fyrir að lausaganga katta teljist með sama hætti alvarlegt brot, enda löng hefð fyrir lausagöngu útikatta hér á landi. Hér er ekki um að ræða breytingu á gildandi rétti að öðru leyti en að skerpt er á því að reglan um að dýr skuli vera í taumi þegar það fer um sameign taki til hunda en ekki katta, enda almennt ekki venjan að kettir séu í taumi. Þá bæti ég nú við: Og ekki heldur venjan að kettir séu að væflast um í sameign, a.m.k. ekki þar sem ég persónulega þekki til, heldur er það nú oftast þannig að ef kettir eru einhvers staðar hátt uppi þá eru það venjulega innikisur en ef þeir eru á neðri hæðum þá venjulega fara þeir út og inn um glugga á viðkomandi íbúð. Það hefur nú verið mín reynsla.
Brjóti eigandi dýrs verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum samkvæmt lögunum eða sérstökum reglum sem húsfélagið hefur sett sér um fyrirkomulag dýrahalds, þrátt fyrir áminningar húsfélags, getur húsfélag bannað viðkomandi dýrahald og gert honum að fjarlæga dýrið úr húsinu. Lagt er til að til þess þurfi samþykki tveggja þriðju hluta eigenda í stað einfalds meiri hluta. Áfram er gert ráð fyrir að ef allt um þrýtur geti gróf eða ítrekuð brot leitt til þess að húsfélagið beiti úrræðum skv. 55. gr. laganna gagnvart eiganda dýrsins en þar er kveðið á um heimild húsfélags til að leggja bann við búsetu og dvöl tiltekins eiganda og gera honum að flytja og selja eignarhluta sinn vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Ekki er talið að það hafi áhrif á ríkissjóð en eins og fram hefur komið hefur efnislega sambærilegt frumvarp áður verið lagt fram sem þingmannafrumvarp hér á Alþingi fjórum sinnum og einu sinni sem stjórnarfrumvarp. Þá fór frumvarpið í opið umsagnarferli í samráðsgátt stjórnvalda og hlaut þar mjög góð viðbrögð. Með þessu frumvarpi er stigið sanngjarnt og málefnalegt skref í átt að nútímalegri löggjöf um gæludýrahald. Við tökum mið af því hvernig fólk býr og lifir og við treystum fólki til að axla ábyrgð og samábyrgð í sameign. Við gerum ekki lítið úr áhyggjum nágranna sem eru með ofnæmi eða sem óttast ónæði en við lítum til þeirra úrræða sem lögin veita nú þegar og við styrkjum þau þar sem við á. Við ætlum okkur að setja réttlátt, heilbrigt og skýrt regluverk um dýrahald sem styður bæði fólk og dýr.
Ég vænti málefnalegrar umræðu um málið og ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.