157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef í sjálfu sér ekkert nema gott um markmið laganna að segja, þ.e. að veita fólki meiri möguleika á að vera með gæludýr í fjöleignarhúsum. Ég hef hins vegar gert fyrirvara við það að ekki sé gert ráð fyrir því að sameigendur geti komið sér saman um að vera ekki með gæludýr, þ.e. þinglýst kvöð um að tiltekið hús verði aldrei með gæludýr. Ég tel að það þyrfti að skoða það aðeins frekar hvort ekki sé tilefni til að setja inn ákvæði um það til að taka af allan vafa um það, sem ég held að jafnvel þurfi að gera til þess að slík þinglýsing haldi, þessi heimild til að þinglýsa slíkri kvöð á fasteign, segjum nýbyggingu sem t.d. astmasamtök myndu vilja reisa, þar sem tryggt yrði að ekki yrðu gæludýr. Nú er meginreglan sú í lögfræði og fjöleignarhúsalögum að það er ákveðið samningsfrelsi þótt fjöleignarhúsalögin takmarki það verulega, sem er undantekning frá hinu almenna samningsfrelsi sem á alla jafna við. Ég hef því smááhyggjur af því að kannski sé með þessu verið að koma í veg fyrir að menn komi sér saman, þar sem allir væru sammála, um að gæludýr væru ekki í húsinu og myndu vilja tryggja að svo yrði um ófyrirséða framtíð jafnvel þótt eigandaskipti yrðu, að það væri hægt að þinglýsa slíkri kvöð. Hvað finnst hæstv. ráðherra um slíkar hugmyndir, að bæta því inn í lögin, setja það þannig inn til að mæta áhyggjum sem m.a. Astma- og ofnæmisfélagið og fólk með veruleg óþægindi af gæludýrum hefur af þessu frumvarpi?