157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:22]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður hefur áður viðrað þessa hugmynd sína, að t.d. Astma- og ofnæmisfélag Íslands gæti reist hús sem yrði undanþegið algerlega og með skilyrt bann við dýrahaldi. Ég vil nú byrja á því að segja að það eru afskaplega litlar líkur á því að Astma- og ofnæmisfélag Íslands myndi reisa hús og að astmaveikt fólk kæmi raunverulega með dýr í húsið. Það myndi ég halda ef það væri slæmt. Allar svona breytingar á löggjöfinni, eins og í þessu tilviki, og hvers kyns frávik frá raunverulegu markmiði laganna, bjóða bara upp á meiri sundrung. Við þekkjum það að reynt sé að fara í kringum lögin og nýta sér það og finna einhverjar glufur í löggjöfinni. Það er ekki markmiðið með þessum lögum. Þau eru skýr og ég tel að þau séu það skýr að ég er búin að leita eftir því að hv. þingmaður nefndi t.d. þetta sérstaka tilvik. Þegar ég naut þess heiðurs að fá að vera gestur hv. velferðarnefndar og kynnti þetta mál og fleiri mál hafa fulltrúar og sérfræðingar í mínu ráðuneyti algjörlega tekið af allan vafa um að frumvarpið sé það skýrt að það eigi ekki á neinum tímapunkti að geta orsakað það að fólk geti ekki alltaf notið vafans umfram gæludýrið, sérstaklega ef um er að ræða fólk sem er veikt og annað slíkt. Þá myndi hundurinn í raun hundrað prósent vera látinn fara á undan manneskjunni. Við tökum líka fram í löggjöfinni að við getum beitt 55. gr. sem er afskaplega íþyngjandi (Forseti hringir.) og stórt og mikið ákvæði. Ég svara meiru í síðara andsvari við hv. þingmann.