fjöleignarhús.
Virðulegur forseti. Það er einmitt mikilvægt að lög um fjöleignarhús séu nokkuð skýr. Þau hafa öðlast mjög traustan sess í íslenskri löggjöf. Framkvæmd þeirra er orðin mjög skilvirk og ákveðnar meginreglur þar sem hefur verið litið til og eru skráðar í fjöleignarhúsalögunum. Að mínu mati er mikilvægt að raska ekki megininntaki og eðli fjöleignarhúsalaganna hvað það varðar. Einmitt þess vegna hefur komið fram ábending um það að þetta frumvarp sé einmitt að gera það og einmitt varðandi 55. gr. fjöleignarhúsalaganna þar sem eingöngu er gert ráð fyrir að húsfélagið geti beitt úrræðum komi upp ágreiningur en ekki einstakir eigendur. Samt gerir 55. gr ráð fyrir að aðrir einstakir eigendur geti gripið til tiltekinna úrræða og það er auðvitað vont að eiga allt undir þriggja manna húsfélagi en aðrir eigendur geta ekki gripið til sömu úrræða. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra, vegna þess að samstaða var orðin um það í nefndinni á síðasta þingi að gera breytingu á þessu frumvarpi (Forseti hringir.) í samræmi við það sem ég er að nefna, breytingu á 55. gr., um að gefa einstökum eigendum tækifæri til þess að grípa til úrræða: Af hverju hefur hæstv. ráðherra ekki sett það inn í þetta nýja frumvarp, þá samstöðu sem náðist í hv. velferðarnefnd á síðasta þingi?