157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:26]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Af hverju tókum við ekki inn og breyttum frumvarpinu í takti við það sem hv. þingmaður segir að hafi verið samþykkt af velferðarnefnd? Ég veit ekki alveg hvernig því hefur verið háttað nema formaður velferðarnefndar ásamt hluta af meiri hluta velferðarnefndar kannaðist bara einfaldlega ekki við málið. Hann kannast ekki við að nokkuð hafi verið gert með þetta nema bara af hálfu minni hlutans í nefndinni. Hv. þingmaður er þá að segja mér einhverjar fréttir sem ég bara alls ekki vissi af; ég ítrekaði það, spurði eftir því sérstaklega og gekk sérstaklega eftir því, að fá að vita hvað raunverulega væri um að vera í velferðarnefnd. Þá kom í ljós að í raun vissi enginn neitt í meiri hlutanum en það var minni hlutinn og hv. þm. Sigríður Á. Andersen sem sérstaklega höfðu gengið fram í því að koma þessu áleiðis. Þannig var það. En hvað lýtur að því að einn einstaklingur geti farið að ganga svona fram, nei, ég tel það alveg af og frá og ég held að það skapi hreinlega bara (Forseti hringir.) glundroða og yrði algerlega í þversögn við það markmið sem við erum að setja með þessum lögum, að tryggja fólki jafnrétti á við aðra til að halda sitt gæludýr.