157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:27]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu um þetta mál. Þetta mál vekur upp miklar tilfinningar í samfélaginu af því að dýr eru nátengd okkur mönnunum. Sjálfur á ég hund sem ég lít á sem einn fjölskyldumeðlim minn. Það skiptir líka máli að fólk sem er í fjölbýli finnist að á það sé hlustað. Hér kom hæstv. ráðherra fram með ríkar ástæður fyrir því að hægt væri að banna dýrahald og nefndi þar hávaða, eða ónæði, og ofnæmi. Auðvitað er alls konar ofnæmi til. Það er til grasofnæmi, frjóofnæmi, hnetuofnæmi — hnetuofnæmi getur verið banvænt. Hávaði getur verið alls konar: píanó, ungbörn, stapp, söngur. Alls konar hávaði óháð því hvort gæludýr séu á staðnum eða ekki. En það er tvennt í viðbót, held ég, sem almenningur hafi áhyggjur af; það er óþrifnaður og það er ótti. Ég þekki það sjálfur að óþrifnaður getur óhjákvæmilega fylgt gæludýrum. Alls konar hlutir berast inn með dýrum. Sama með það sem fólk á kannski erfiðara með að viðurkenna; ef það óttast einhver dýr. Menn geta verið hræddir við mýs, fugla, snigla, hunda og ketti og hvað sem er.

Ég spyr því hæstv. ráðherra hvort það séu einhverjar pælingar í því að setja einhvern fyrirvara við þetta líka, ef þessu er ekki sinnt. Ef fólk hefur raunverulegan og mikinn ótta eða það er ofboðslegur óþrifnaður af dýrum að það geti orðið ríkar ástæður líka. Því að ég held að það sé fernt: hávaðinn, ofnæmið, óþrifnaðurinn og óttinn. Annars finnst mér þetta vera svona frelsismál sem maður styður örugglega.