fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en ég get ekki tekið undir það með hv. þingmanni að þetta skapi einhver óþarfavandamál, bara þvert á móti. Við erum fyrst og síðast að reyna að koma til móts við fólk sem hefur ekki kost á því að búa einhvers staðar með sérinngangi eða í einbýlishúsi. Þetta er jafnréttismál, þetta er mannúðarmál og verið að færa okkur aðeins inn í nútímann, ekki enn að sitja á 17. öldinni eða eitthvað slíkt. Ég segi fyrir mína parta að það eru það miklir varnaglar í frumvarpinu sem eiga að girða fyrir allt sem heita einhverjar óvæntar uppákomur. Ég kem ekki auga á það sem hv. þingmaður segir og eiginlega bara átta mig alls ekki á því. Ég get því alls ekki tekið undir það og hvort þetta sé einhver spurning um: Af hverju núna eða af hverju ekki eftir tíu ár eða einhvern tíma seinna? Fátækt fólk hefur endalaust þurft í þessu samfélagi að bíða eftir réttlætinu og það er þess vegna sem Flokkur fólksins hefur komið fram með þetta mál og finnst það vera hjartans mál af því að við viljum ekki mismuna fólki eftir efnahag, hvort heldur sem það býr í bæ eða borg. Þannig að það er alveg skýrt, þetta hefur verið okkur hjartans mál og það er ánægjulegt, virkilega ánægjulegt, að finna það að á okkar hv. Alþingi og meðal hv. þingmanna gegnumsneitt er mikill stuðningur og hjartans stuðningur við málið. Flest okkar, og sjálfsagt meiri hluti þingmanna, höldum gæludýr, það er nefnilega svo gott sem það er. En þetta frumvarp er í rauninni að einfalda það ferli. Þú þarft ekki að fá fyrir fram nei frá einhverjum einum, tveimur í ganginum heldur getur þú komið með dýrið þitt og ef þú getur sýnt fram á að þú ætlir að hugsa um það og þú sért ekki óalandi og óferjandi, því ef þú ert óalandi og óferjandi eru algerlega skýr úrræði í þessu frumvarpi. Þá einfaldlega færðu kost á því að bæta þig eða þú verður að taka dýrið þitt í burtu.