157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:39]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég er einmitt að ávarpa þær áhyggjur sem koma fram m.a. í umsögnum og í opinberri umræðu. Sjálf er ég fylgjandi því að afnema bann. Ég verð að segja að í nefndinni þá spunnust ansi líflegar umræður um þetta mál og með skemmtilegri málum sem hafa verið þar til umfjöllunar, ef ég get orðað það þannig. Ég tek alveg undir það með hæstv. ráðherra að það er nútímalegra að hafa fyrirkomulagið svona og þetta er það sem við þekkjum í löndunum alls staðar í kringum okkur, alls staðar þar sem við ferðumst, eða alla vega í nágrannalöndunum.

Mér finnst það líka mjög skemmtilegt eftir að kaffihús fóru að bjóða gæludýr velkomin og svona. Þetta er bara ákveðin þróun og gæludýrahald er náttúrlega orðið gríðarlega almennt. Í rauninni er þetta hið besta mál en maður verður bara að snerta á þeim áhyggjum sem fólk hefur og koma þarna fram. Það eru heilu húsfélögin og einstaklingar sem eru að lýsa yfir áhyggjum, hvernig eigi eiginlega að leysa það ef upp koma ágreiningsmál. (Forseti hringir.) Ég veit að við erum ekkert að leysa það hér í þessum þingsal og ég ætlast ekki til þess.

En það hefur líka komið fram, afsakaðu forseti, spurning um það (Forseti hringir.) hvort það eigi að setja hömlur á fjölda eða tegundir gæludýra. Hvað finnst ráðherranum um það?