157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[18:42]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hér og setja fram sjónarmið mín sem ég hef svo sem haft uppi á síðasta þingi varðandi þetta mál. Það er einkum tvennt sem ég vildi nefna á þessu stigi málsins. Ég tek það fram að ég veit ekki hvort málið er endilega til bóta en ég tel að þetta mál, nái það fram að ganga, verði kannski ekki til mikilla vandræða almennt. Hins vegar er það þannig, eins og með önnur mál sem varða fjöleignarhús, að þegar mál verða til vandræða þá geta þau orðið mjög til vandræða, þ.e. það eru ekki mörg mál en þau mál sem verða geta orðið mjög erfið viðureignar. En ég hallast nú að því og hef tilhneigingu til að lýsa yfir ákveðnum stuðningi við a.m.k. markmið þessa máls.

Það er tvennt sem ég vildi nefna. Annars vegar að þegar málið kom fyrir hv. velferðarnefnd á síðasta þingi komu fram sjónarmið þeirra sem eru með ofnæmi t.d. eða hafa af því einhvern ama að vera innan um hunda og ketti, að það væri ekki nógu mikið tillit tekið til þeirra með þessu frumvarpi. Það er vissulega þannig að fjallað er um það í frumvarpinu og gert ráð fyrir því að hægt sé að grípa til einhverra aðgerða gagnvart íbúum fjöleignarhúss sem hafa gæludýr sem ami er af með áminningu og jafnvel bannað viðkomandi hunda- eða kattahald eða a.m.k. gert eigandanum að fjarlæga dýrið úr húsinu, með hefðbundnum tveimur þriðja hluta eiganda. Svo er líka gert ráð fyrir því að ef allt um þrýtur þá geti húsfélagið beitt úrræðum samkvæmt 55. gr. gagnvart eiganda dýrsins. Það er úrræði sem varðar það að fá viðkomandi eiganda borinn út úr húsinu eða banna honum að búa í húsinu.

Það komu fram ábendingar um að 55. gr. geri ráð fyrir því að einstakir eigendur geti líka gripið til aðgerða eða úrræða samkvæmt henni en það er þó auðvitað og hlýtur að vera í samfloti við annað sem greinin kveður á um, sem er aukinn meiri hluti íbúa. Það komu fram sjónarmið um að það gæti verið þungbært húsfélögum að þurfa að grípa til úrræða, húsfélag sem kannski er skipað þremur einstaklingum en eins og menn þekkja er lítið um sjálfboðaliða til að sitja í stjórnum húsfélaga þannig að það myndi lenda á þessum einstaklingum að grípa til úrræða. Það kom ábending um það, sem mér finnst alveg réttmæt, að það gæti verið eðlilegt að aðrir íbúar geti líka tekið hitann og þungann af slíkum erfiðum málum og það hvíldi ekki bara á herðum húsfélagsstjórnar að gera það. Það kom einmitt tillaga eða ábending um að það gæti verið heppilegt að gera a.m.k. ráð fyrir því í þessu frumvarpi að það væri ekki bara húsfélagið heldur líka einstaka eigendur sem gætu beitt úrræðum samkvæmt 55. gr.

Þetta mál var þannig unnið úr nefndinni á síðasta þingi að það var samstaða um nefndarálit með þessari breytingartillögu, sem a.m.k. ég stóð að ásamt þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna, nú bara man ég ekki hvort aðrir þingmenn, þ.e. aðrir þingmenn sem sitja í minni hluta á þinginu tóku þátt í þessu nefndaráliti. En í öllu falli gerði ég það. Mér fannst það koma til móts að einhverju leyti við þessi sjónarmið.

Hins vegar bar svo til tíðinda hér á frægu sumarþingi þar sem var verið að ræða alls óskylt mál, þó dýramál í tengslum við álagningu veiðigjalda, að hlé var gert á fundi um sumarið til þess að boða til fundar í hv. velferðarnefnd þar sem nefndarmönnum var tilkynnt að þetta nefndarálit og þessi breytingartillaga væri dregin til baka, meiri hlutinn gæti ekki staðið að þessari breytingartillögu. Það var án frekari skýringa, það stæði bara þannig á að þingmenn meiri hlutans gætu ekki staðið að þessari breytingartillögu. Samþykkt var annað nefndarálit þar sem þessi breytingartillaga hafði verið felld niður og það er það nefndarálit sem menn finna á vef Alþingis, sem er í rauninni bara smávægileg breyting á orðalagi og að öðru leyti gerð tillaga um að frumvarpið verði samþykkt óbreytt efnislega. Svo dagaði málið auðvitað uppi. En þetta var heilmikið mál og mátti greina að mönnum lægi á að draga til baka þetta nefndarálit og ég skil það nú ekki. En hæstv. ráðherra kannaðist ekki við það hér í ræðu eða í andsvari við mig hér fyrr. Gott og vel. Það skip er siglt og sú saga sögð. Ég vildi bara nefna það hér að þannig var í pottinn búið og ég álít að það komi til greina að gera þessa breytingu eftir sem áður í hv. velferðarnefnd, a.m.k. mun ég bera upp þessa tillögu eða ræða möguleikann á þessu.

Hitt er svo annað mál að fjöleignarhúsalögin eru um margt, ef ekki eiginlega bara langflest, ef ekki öll, ákaflega góð og þau hafa skapað mikla formfestu í þeim málum er varða fjöleignarhús. Þau eru í einhverjum tilfellum undantekning frá reglu um samningsfrelsi manna vegna þess að þau eru mjög skýr um ákveðinn farveg sem ágreiningur þarf að fara í í fjöleignarhúsum og mjög skýr um meirihlutaræði t.d. Þetta frumvarp er nú reyndar að gera undantekningu á ákveðnu meirihlutaræði og úrlausn ágreiningsefna sem er kveðið á um hér og er ekki heppilegt og tengist því sem ég var að ræða áðan en ég ætla ekki að halda áfram með, en það er ekki gert ráð fyrir því að menn geti samið eða þinglýst kvöð. Þótt menn séu allir sammála í fjöleignarhúsum þá er álitaefni hvort allir sameigendur geti komið sér saman um að þinglýsa tilteknum kvöðum á fasteignir sínar. Á þetta hefur svo sem reynt stundum. En miðað við hversu afdráttarlaust þetta frumvarp er, nái það fram að ganga, þá myndi það a.m.k. skapa einhverja óvissu um það ef allir íbúar í einu fjöleignarhúsi myndu vilja þinglýsa kvöð um að það væri bannað í þessu húsi að vera með hunda og ketti. Þinglýst kvöð hefur það í för með sér að hún myndi binda seinni tíma eigendur, þinglýst kvöð fellur ekki niður þrátt fyrir aðilaskipti. Mér er til efs að slík þinglýst kvöð myndi halda raunverulega ef á það reyndi.

Mér detta í hug tilvik þar sem kannski fasteignafélag vill reisa nokkur fjöleignarhús og mögulega gera eitt fjöleignarhúsið þannig að þar yrði aldrei leyft hunda- og kattahald, það gæti verið markaður fyrir slíkt. Nú þekki ég það ekkert hvort það er markaður fyrir slíkt, það er ekkert víst að það væri eftirsótt að búa í slíku húsi og jafnvel þótt fólk vildi ekki hunda og ketti sjálft þá gæti það torveldað sölu síðar og svoleiðis. Ég hef enga hugmynd um það. Mér finnst hins vegar alveg tilefni til að skoða hvort það gæti ekki verið rétt, þótt ekki væri nema til þess að koma til móts við þessa miklu andstöðu sem sumir hafa gagnvart í þessu frumvarpi, að taka af allan vafa um það að menn geti þinglýst slíkri kvöð, séu allir sammála um það í húsinu. Það væri kannski raunhæfara í nýbyggingu, einhverjum nýbyggingum, að fasteignafélag myndi ákveða að gera það áður en það færi að selja íbúðirnar. Það gæti líka verið og ég get alveg séð það fyrir mér að einhver samtök eins og astmasamtökin myndu vilja á einhverjum tímapunkti reisa fjöleignarhús fyrir sína meðlimi og þá myndi skipta máli að það væri þinglýst kvöð um þetta efni á alla fasteignina. Það er vissulega rétt sem hæstv. félagsmálaráðherra nefndi í andsvari við mig um þetta atriði að það er kannski ekki líklegt að einhverjir myndu vilja flytja inn í slíkt hús en það breytir því ekki að með tímanum gætu orðið aðilaskipti af ýmsum ástæðum í slíku húsi og þá er brýnt að það sé þinglýst kvöð um að það megi ekki vera með hunda og ketti því að öðrum kosti myndi það ekki binda seinni eigendur eftir aðilaskipti þó að astmasamtökin hefðu reist þetta hús. Ég tek það fram að ég veit ekki um nein áform og tala ekki fyrir hönd astmasamtakanna og hef enga hugmynd um hvort þau hafi áhuga á að reisa slíkt hús. Ég tek þetta bara sem dæmi.

Þetta var hitt atriðið sem ég vildi nefna og ég mun taka það upp í hv. velferðarnefnd og kanna stuðninginn við það í þinglegri meðferð.