fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var um margt fróðleg. Ég heyrði parta af henni hér í matsalnum og ákváð að koma hingað inn í þingsal til að spyrja hana um nokkra þætti. Það sem ég vil kannski fyrst ræða hér eru þessar þinglýsingar sem hv. þingmaður ræðir um. Ég held að það gæti verið frumvarpinu til bóta ef einhverjir sem eru að byggja hús vilja ekki hafa dýr í ákveðnum stigagöngum, ég sé ekki alveg hvaða — því að megnið af íbúðum myndi þá falla undir þau lög. Ég sé ekki að valfrelsi myndi minnka framboð á húsnæði til gæludýreigenda nema svo litlu nemi og um leið væri komið til móts við hóp sem hefur mjög sterkar tilfinningar og skoðanir á þessu máli. Auðvitað vill maður reyna að koma til móts við sem flesta. Þrátt fyrir að mér þyki ægilega gott að vera í kringum dýr þá er það ekki þannig með alla.
Ég spyr hv. þingmann, af því að hann er nú löglærður en ekki ég, með þinglýsingar á svona — það hlýtur að vera hægt að afþinglýsa einhverju slíku ef allir eru sammála um það. Ef menn myndu þinglýsa því að stigagangurinn í 28 væri án gæludýra en síðar kæmust allir að þeirri niðurstöðu að það ætti að fella það út — ég spyr hvort það sé ekki hægt. Ég spyr hvort þingmaðurinn sjái eitthvað því til foráttu að lítill minni hluti íbúa fái, ef breytingartillaga hv. þingmanns gengur í gegn — hvort það myndi að einhverju leyti hamla þeim sem vilja vera í kringum gæludýrin í því að finna sér íbúð.