fjöleignarhús.
Virðulegur forseti. Ég þakka spurninguna. Nú vil ég taka fram að það er ekkert víst að ég leggi fram þessa breytingartillögu en ég hef áhuga á að ræða þetta í hv. velferðarnefnd og jafnvel fá sérfræðinga í þessu til þess að velta aðeins upp ýmsum flötum á þessu. En það er alveg rétt að til að þinglýsa kvöð á fjöleignarhús þá þarf auðvitað samþykki allra og að sama skapi er alveg hægt að aflýsa kvöðinni með samþykki allra á einhverjum tímapunkti. Hvort þetta hafi áhrif á framboð íbúða, það skal ég ekki segja. Mér þætti það ótrúlegt. Eins og ég segi, jafnvel fólk sem er ekkert vel við hunda og ketti og hefur engan áhuga á að halda slík dýr í sínum íbúðum, ég er ekkert endilega viss um að það sé sérstaklega ginnkeypt fyrir að vera bundið við það að hafa slíka kvöð á sinni íbúð. Hafi það einhvern tímann hug á að selja íbúðina þá minnkar markhópur við söluna að einhverju leyti, þannig að ég skal ekki segja.
Ég held að þetta myndi ekki hafa mikla röskun á framboði íbúða gagnvart gæludýraeigendum í för með sér. Ég held að þetta gæti verið, eins og hv. þingmaður sagði, ákveðin leið til að koma til móts við þessi sjónarmið, mjög háværar raddir sem hafa uppi önnur sjónarmið en þeir dýravinir sem við hér erum öll.