157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:02]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Minn flokkur, Viðreisn, og flokkur hæstv. ráðherra, Flokkur fólksins, tilheyra eins og allir vita stjórnarmeirihluta sem við höfum gjarnan lýst sem samhentum og samstiga, enda er það það sem við erum og það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna með hæstv. ráðherra. Ég held þó að sjaldan hafi mitt frjálslynda Viðreisnarhjarta og hjarta hæstv. ráðherra slegið jafn mikið í takt og hér núna í framsögu hæstv. ráðherra um þetta mál. Í greinargerðinni með frumvarpinu og í framsöguræðu hæstv. ráðherra eru færð mjög góð rök fyrir því af hverju við eigum að stíga þetta skref, eins og kemur fram í greinargerðinni, með leyfi forseta:

„Þannig er gæludýraeign almennt talin draga úr félagslegri einangrun og einmanaleika ásamt því að geta átt þátt í að draga úr streitu, kvíða og þunglyndi. Er því mikilvægt að stuðla að jákvæðri umgjörð um hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum.“

Jafnframt var minnst á samanburð við önnur Norðurlönd, eitthvað sem við gerum gjarnan, þar sem reglurnar eru ekki jafn strangar og hér. Fyrir mér er þetta líka bara fyrst og fremst mikið frelsismál. Í gegnum tíðina hefur gjarnan verið ríkjandi ákveðin forræðishyggja hjá okkur Íslendingum gagnvart gæludýrum. Eins og kemur líka fram í þessari góðu greinargerð ríkti áratugum saman bann við hundahaldi í Reykjavík. Ég var mjög ungur þegar því var aflétt og ég ætlaði eiginlega varla að trúa þessu þegar ég komst að því fyrst að þetta hefði verið staðan.

Ég tek undir með hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur að það hafa síðan verið stigin önnur jákvæð skref eins og að rýmka fyrir að gæludýr séu leyfð á kaffihúsum o.s.frv. Hér erum við að taka annað skref í átt frá þessari forræðishyggju í garð gæludýra, í staðinn fyrir að það sé útgangspunkturinn að gæludýr séu bönnuð þar til annað kemur í ljós þá erum við að breyta þessu þannig að gæludýr verði leyfð nema eitthvað annað komi í ljós, þ.e. eins og kemur fram í frumvarpinu, ef tveir þriðju hlutar eigenda ákveða að einhverjar reglur skuli gilda. Þetta er mikið frelsismál sem ég tek heils hugar undir.

Það hefur verið komið inn á í andsvörum og ræðum hv. þingmanna hér að auðvitað eru ýmsir vinklar sem þarf að hafa vel í huga, fólk með ofnæmi og astma o.s.frv. en ég treysti hv. þingmönnum í velferðarnefnd til að taka það vel til skoðunar. Ég vona að þegar við göngum síðan til endanlegrar atkvæðagreiðslu þá munum við stíga þetta skref, að útgangspunkturinn sé að gæludýr séu leyfð en ekki að útgangspunkturinn sé að gæludýr séu bönnuð.