fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi þessa umsögn og spurningu hv. þingmanns um hvort þessi lög myndu brjóta gegn eignarréttarákvæðinu er ég í fljótu bragði ósammála því mati en ég er ekki löglærður og ef einhver myndi vilja láta reyna á það væri það væntanlega hægt fyrir dómstólum. En ég er í fljótu bragði ósammála því mati. Ég velti líka fyrir mér frelsi fólks til að halda gæludýr. Það hlýtur líka að vega eitthvað. Eins og ég nefndi í minni ræðu þá er þetta eitthvað sem ég treysti hv. velferðarnefnd til að leggjast vel yfir.