fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér í pontu áðan. Mig langar að benda á að þrátt fyrir að þetta mál sé kannski léttvægt í hugum margra er þetta ofboðslega mikið tilfinningamál fyrir aðra. Ég held að það sé hægt að fara með þetta mál á hvaða kaffistofu sem er í hvaða fyrirtæki eða skólastofnun sem er og hleypa öllu í bál og brand því fólk hefur sterkar skoðanir á þessu. Í þessu máli eru mjög miklar tilfinningar. Almennt séð finnst mér best að það sé hægt að koma til móts við andstæð sjónarmið með sem flestum hætti.
Því langar mig að spyrja hv. þingmann, sem er maður frelsisins, hvort hugmynd hv. þm. Sigríðar Á. Andersen um þinglýsingu einhverra fjölbýlishúsa megi ekki líka túlka sem frelsi til að vera án gæludýra. Það hlýtur að vera ákveðið frelsi ef allir íbúarnir kjósa að vera án gæludýra því það geta verið alls konar ástæður fyrir því að fólk vill ekki vera nálægt hundum og köttum. Þótt maður átti sig ekki alltaf á ástæðunum geta þær verið ýmsar. Getur hv. þm. Ingvar Þóroddsson ekki tekið undir með því, sé horft til frelsis til að vera án gæludýra, að það ætti að vera hægt að þinglýsa einhverja stigaganga án gæludýra?