fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir sitt andsvar. Eins og ég nefndi í minni ræðu þá finnst mér þetta vera skref í frelsisátt af því að í staðinn fyrir að það sé útgangspunkturinn að gæludýr séu bönnuð, nema þau séu leyfð, þá erum við hér í rauninni að breyta þannig að útgangspunkturinn er að þau séu leyfð nema það sé gert eitthvað annað. Undir þá hugsjón mína finnst mér einmitt falla frelsi einhverra, t.d. astmafélagsins, að byggja sér sérstaklega blokk sem væri gæludýralaus. Mér finnst það ekki vera í andstöðu við svona meginhugsjónina sem býr að baki þessu frumvarpi og af hverju ég er sammála því, þannig að ég get algerlega tekið undir það sem kom fram í andsvari hv. þingmanns.