157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:12]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svar hans við andsvari mínu. Það er gott að heyra það að frelsið virkar í allar áttir. Þrátt fyrir að ég geti búið með hundum og köttum þá er ekki víst að það séu allir tilbúnir til þess. Ég ítreka það að þetta er ofboðslega mikið tilfinningamál. Stór hluti, líklega samt minni hluti almennings, er ósáttur við það eða vill ekki búa, myndi kjósa síður að búa í sambýli við dýr, hunda og ketti, vegna mögulegs óþrifnaðar, hávaða, ótta, ofnæmis. Ef þú getur 100% losað þig við þessa þætti þá ertu líklegur til að segja: Já, ég er til í það, hvað þá ef það er nafnlaust.

Ég er hlynntur málinu en vil að það sé komið sem mest til móts við fólk sem er andstætt mínum skoðunum. Þannig vil ég vinna og þannig vil ég líka hlusta á fólk. Mér heyrist hæstv. ráðherra vera mestmegnis á þeirri skoðun, fyrir utan það að taka ekki undir orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen varðandi að geta þinglýst einstaka stigagöngum. Það eru ekki bara astmasamtökin eða eitthvað slíkt, það er bara fullt af fólki sem hefur ekki áhuga á að búa í húsi þar sem gæludýr eru leyfð. Það er miklu fleira fólk en bara astmaveikir. Fólk hefur sent mér alls konar pósta um að það vilji þetta ekki og vill kannski ekki útskýra af hverju. En er ekki mikilvægt að þetta mál fari í sem allra mestri sátt í nefndina núna á næstu dögum?