157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:14]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður spyr hvort ekki væri best að afgreiða þetta mál í sem mestri sátt. Jú, auðvitað, og það á náttúrlega við um flest mál sem við samþykkjum hér að auðvitað væri langbest ef það væri í sem breiðastri sátt en stundum þurfum við líka bara að ganga til atkvæðagreiðslu og svo fer sem fer. Hv. þingmaður kemur inn á óþrifnað o.s.frv. Ákvæði sem snerta á óþrifnaði og umgengni í sameign eru nú þegar í lögum um fjölbýlishús og girða í raun fyrir að hægt sé að skilja eftir sig óþrifnað af völdum gæludýra í sameign.

Það var annar punktur sem ég ætlaði að koma inn á, nefnilega að ítreka það sem er kveðið á um í þessu frumvarpi, með leyfi forseta:

„Bann við hunda og/eða kattahaldi tiltekins eiganda, ef dýr veldur öðrum íbúum verulegum ama, ónæði og truflunum og eigandi dýrsins ræður ekki bót þar á eða ef eigandi viðeigandi dýrs brýtur verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum …“

Þá sé hægt að leggja á bann með tveimur þriðju hlutum atkvæða eigenda. Ég sé því ekki hvernig þau sjónarmið sem hv. þingmaður lýsir stangist á við það frumvarp sem við höfum hér fyrir framan okkur.