157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:16]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Eins og hér hefur komið fram og við erum að fjalla um þá á þetta mál sér marga ólíka fleti. Þetta hefur hreyft við mörgum í samfélaginu, miklar tilfinningar þarna að baki með eða á móti og allt þar á milli, held ég. Ég held að við séum nú flest sem höfum tekið til máls í kvöld sammála um að þetta sé frelsismál, þetta sé mál í rétta átt. Við erum að nálgast það sem við þekkjum og tíðkast í okkar nágrannalöndum og ætlum að reyna að treysta því að húsfélögin geti sjálf fengið að ráða þessu og taka á málunum ef upp koma vandamál. Við höfum fagnað því líka að hundar og kettir eru í auknum mæli velkomnir inn á kaffihús og jafnvel inn í verslanir og slíkt og við vitum hvað gæludýrin eru mikilvæg mjög mörgu fólki og það er í sívaxandi mæli sem fólk er að taka að sér slík dýr sér til ánægju og yndisauka.

Eins og við höfum komið hérna inn á þá komu á síðasta þingi hátt í 20 umsagnir um málið og við erum að fara að senda þetta aftur inn í velferðarnefnd til umfjöllunar. Ég sagði það líka hérna áðan að þetta er eitt af aðaláherslumálum Flokks fólksins og bara gaman að það sé komið aftur hingað — er það ekki rétt? — til umræðu.

Það eru skiptar skoðanir á því hvort þetta geti valdið þvílíkum vandamálum líka inni í húsum að það sé kannski verið að búa til ný vandamál í stað þeirra sem fyrir voru. En ég er á því, eins og hæstv. ráðherra, að við treystum fólki og að það séu leiðir og við treystum fólki til að geta leyst slík mál, komi þau upp, sem er viðbúið, rétt eins og í því kerfi sem við þekkjum núna.

Ég nefndi hérna fyrr að húsfélög og einstaklingar og alls kyns samtök hafa sent inn umsagnir og ég spurði hérna út í og fékk viðbrögð frá stjórnarþingmanni um áhyggjur sem húsfélag í Kópavogi hefur af þessum breytingum. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Undirritaðir […] telja að framlagt frumvarp brjóti á réttindum íbúðareigenda í fjöleignarhúsum og sé í andstöðu við eignarréttarákvæði 72. greinar stjórnarskrár íslenska lýðveldisins t.d. ef fólk missir af sölu vegna þessara lagabreytinga.“

Annars staðar er einstaklingur að lýsa yfir áhyggjum. Umsagnirnar eru alls konar, með og á móti og þetta er í rauninni alveg dásamlegt mál. En ég trúi því rétt eins og hæstv. ráðherra að það sé hægt að stíga þetta skref. Hér hafa þingmenn boðað það að vilja ræða ákveðnar mögulegar breytingar á frumvarpinu inni í hv. velferðarnefnd og við förum bara glöð í þá vinnu. Annars held ég að það sé tilhlökkunarefni að takast á við þetta mál og auðvitað er betra að það náist nokkuð góð sátt um þetta og við getum fundið einhvern flöt á því að gera þær breytingar sem menn telja eftir yfirlegu að séu til bóta.

Við stöndum, held ég, með gæludýrunum og það vill svo skemmtilega til að það virðast nú einhverjir vera að fylgjast með þessari umræðu því að ég fékk rétt í þessu senda mynd af mjög fallegri kisu, sem reyndar heitir Maggie Thatcher, þannig að það var bara skemmtilegt. En ég hlakka til að taka þetta áfram inni í velferðarnefnd.