húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Skjótt skipast veður í lofti. Við ræddum heilmikið frelsismál, eins og það var kallað, um hunda og ketti hér á undan. Nú liggur fyrir þinginu heilmikið forsjárhyggjumál og frumvarp er lýtur að miklu eftirliti og er auðvitað fullsæmandi flokkum sem styðja eftirlitsþjóðfélagið með einum eða öðrum hætti. Hér er verið að reyna að kortleggja íbúðamarkaðinn með því að leggja miklar kvaðir á leigusala og íbúðareigendur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því hvernig það megi vera að í svona frumvarpi — sem felur í sér róttækar breytingar á húsnæðismarkaðnum að þessu leyti og er róttækt inngrip í bæði samningsfrelsi, persónurétt og friðhelgi einkalífsins einnig — að kafli um mat á áhrifum er nánast hvorki fugl né fiskur að þessu leyti. Það er ekki einu sinni gerð tilraun til þess að leggja mat á hvaða áhrif á leiguverð almennt eða einhver önnur áhrif þetta frumvarp mun hafa. Hvaða áhrif halda menn að það hafi á leiguverð þegar það er fest í lög að það megi ekki hækka leiguverð fyrsta árið? Halda menn þá að leigusalar muni bara stilla leiguverðinu í hóf og ekki gera ráð fyrir vísitöluhækkunum eða hækkun vaxta á fjárskuldbindingar sínar innan næstu 12 mánaða? Halda menn virkilega að leigusalar geri ekki ráð fyrir því í upphaflegu leiguverði? Hvernig stendur á því, virðulegur forseti, vildi ég spyrja hæstv. ráðherra, að það er ekki vikið einu orði að þessu í kaflanum um mat á áhrif?