157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[19:41]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég sting mér aðeins inn í þessa umræðu um breytingu á húsaleigulögum, frumvarp sem er flutt hér aftur. Ég er á svipuðum nótum og hv. þm. Sigríður Á. Andersen hvað það varðar að hér er augljóslega verið að takmarka frelsi fólks, verið að takmarka samningsfrelsi einstaklinga á markaði og því má segja að það sé verið að svipta fólk frelsi í þessum efnum. Varðandi hækkun leiguverðs, þá tek ég líka algerlega undir það og það kom skýrt fram í umsögnum og í umræðum í nefndinni að mjög margir sem lögðu fram umsagnir og sendu þær inn voru á því að þetta myndi leiða til hækkunar leiguverðs, þær breytingar sem verið er að gera á fyrstu 12 mánuðum leigusamninga.

En varðandi þær auknu kvaðir sem er verið að setja á leigusala — Viðskiptaráð og fleiri aðilar gjalda varhuga við þessu og hafa hvort tveggja komið fyrir nefndina og sent inn harðorðar umsagnir og telja að þarna sé verið að grafa undan þeim hvötum sem séu nauðsynlegir til að tryggja framboð leiguhúsnæðis, að þetta séu mjög íþyngjandi kvaðir. Varðandi þessar áhyggjur þá langaði mig eiginlega bara að fá viðhorf hæstv. ráðherra til þess því að þarna er talið að þessar íþyngjandi kvaðir bitni einmitt fyrst og fremst á leigjendum sem ég get ímyndað mér að sé nú ekki ætlunin. Hvernig lítur hæstv. ráðherra á þessar umsagnir og áhyggjur?