157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.

[10:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnum síðastliðinn mánudag sagði hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra að hún hefði skipt um skoðun hvað varðar bókun 35 og sagðist hafa vaðið í villu og svíma um málið en hefði loksins séð ljósið eftir samtöl við embættismenn. Það er gott og blessað. Það fær mig til að velta fyrir mér afstöðu hæstv. innviðaráðherra sem hefur í gegnum tíðina verið mjög opinskár um andstöðu sína við bókun 35, bæði áður og eftir að hann tók sæti í ríkisstjórn. Hefur hann m.a. sagt, með leyfi forseta:

„Það er alveg kristaltært að ef þetta verður sett í lög mun það ganga gegn löggjafarvaldinu, um framsal löggjafarvalds, og ganga gegn stjórnarskránni.“

Þessa skoðun hefur hæstv. ráðherra svo margítrekað. Í ljósi nýlegrar kúvendingar hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í málinu tel ég tilefni til að spyrja hæstv. innviðaráðherra hvort hann hafi einnig séð sama ljós og kollegi sinn í ríkisstjórn og formaður hans flokks eða hvort hann telji enn þá að frumvarpið um bókun 35 sé stjórnarskrárbrot. Ef hann telur enn þá frumvarpið brjóta gegn stjórnarskrá, hyggst hann greiða atkvæði með málinu?